Fótbolti

„Stúkan er of þögul“

Mikil barátta er milli tveggja forsetaframbjóðenda Real Madrid. Báðir lofa þeir leikmannakaupum og vilja hafa sín áhrif á félagið.

Fótbolti

Tryggði sigurinn með glæsimarki

Holland tók á móti Alsír í vináttuleik fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem hefst í næstu viku. Bæði lið voru að finna styrkleika sína fyrir mótið.

Fótbolti

Danir and­lausir gegn Kongó

Danir eru ekki sáttir eftir að hafa gert markalaust jafntefli í vináttuleik gegn Kongó í kvöld. Liðið var andlaust og það er ekki að sjá að liðið vilji bæta upp fyrir það að hafa ekki komist á heimsmeistaramótið.

Fótbolti

HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM

Brasilíumenn eru sigursælasta þjóð í sögu heimsmeistarakeppninnar með fimm heimsmeistaratitla og eru eina þjóðin sem hefur alltaf verið með. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir átta daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og nú er komið að því að skoða mótið þegar Norður-Kórea náði betri árangri en Brasilía.

Fótbolti

Ný rangstöðutækni á HM

Línuverðir munu geta flaggað fyrr þegar leikmenn eru rangstæðir á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í næstu viku. Fifa ætlar að nota nýja tækni til að hjálpa línuvörðum að stöðva leikinn með fullri vissu um að leikmaður hafi verið rangstæður.

Fótbolti

Sam­komu­lag náðst milli Iraola og Liverpool

Liverpool og Andoni Iraola hafa náð samkomulagi um að hann verði næsti stjóri Liverpool. Iraola fór frá Bournemouth í lok tímabils eftir að hafa komið þeim í Evrópudeildina í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Fótbolti

John Barnes greindist með krabba­mein

Liverpool-goðsögnin John Barnes hefur greint frá því að hann fékk krabbamein í blöðruhálskirtilinn. Hann er nú búinn að fara í aðgerð til að fjarlægja blöðruhálskirtilinn og er nú á batavegi.

Fótbolti

Wales jafnaði metin í lokin

Wales og Gana gerðu jafntefli í vináttulandsleik í kvöld, 1-1. Þetta var síðasti leikur Gana fyrir heimsmeistaramótið sem byrjar í næstu viku.

Fótbolti

Ver val á meintum kynferðisbrotamanni

Carlos Queiroz, þjálfari landsliðs Gana, kemur Thomas Partey, fyrrverandi miðjumanni Arsenal til varna. Partey er á leið með ganíska liðinu á HM þrátt fyrir að átta ákærur um kynferðisbrot hangi yfir honum.

Fótbolti