Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul segir myndband af henni beita fyrrverandi kærasta sinn, Dakota Mortensen, ofbeldi tekið úr samhengi, það sé hluti af áframhaldandi ófrægingarherferð gegn henni og hann hafi beitt hana ofbeldi. Mortensen hefur aftur á móti farið fram á nálgunarbann á hendur Paul og hafnar öllum ásökunum hennar. Lífið 20.3.2026 15:15
Alaska 1867 er nýliði ársins Alaska 1867 er nýliði ársins samkvæmt Hlustendaverðlaunum Bylgjunnar og FM957 en þau fara fram með óhefðbundum hætti þetta árið. Í ár er það starfsfólk Bylgjunnar og FM957 sem koma sigurvegurum á óvart með heimsókn og stuttum þáttum í kringum það. Lífið 20.3.2026 15:04
Ástrós og Adam eiga von á öðru Dansarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir og frumkvöðullinn Adam Karl Helgason eiga von á öðru barni sínu saman. Fyrir eiga þau eina dóttur sem fæddist 2023. Lífið 20.3.2026 13:33
Þegar kvikmyndagerðar- og tónlistarfólk kemur saman gerast ótrúlegir hlutir Lífið 19.3.2026 12:34
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. Lífið 19.3.2026 07:02
Hvað veistu um… Akureyri? Akureyri er oft kölluð höfuðstaður Norðurlands og það er auðvelt að skilja hvers vegna. Bærinn stendur við innarlega í Eyjafirði, umkringdur fjöllum og náttúru sem breytist með árstíðunum. Lífið 18.3.2026 20:00
Gæðastund með gæðablóðum Leikritið Gæðablóð var frumsýnt fimmtudaginn 12. mars á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fjöldi góðra gesta úr leikhússenunni, menningarbransanum og öðrum geirum mætti til að sjá þá Unnstein Manúel Stefánsson, Jónmund Grétarsson og Davíð Þór Katrínarson stíga á svið. Lífið 18.3.2026 16:41
Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Ástrós Erlu Benediktsdóttur er margt til lista lagt. Hún leiðir einstaklinga, pör og hópa í andlegri sjálfsvinnu en hún hefur sjálf góða reynslu af því að horfast í augu við sig sjálfa og laga það sem var brotið. Ástrós hlustaði ekki á eigið innsæi bróðurpart sinnar ævi og þóknaðist öðrum í staðinn fyrir sér sjálfri. Lífið 18.3.2026 13:01
Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit Íslenska danssveitin Inspector Spacetime hefur vakið athygli víða um heim á undanförnum mánuðum og voru þau meðal annars með lag í vinsælli Apple auglýsingu. Þau virðast sömuleiðis eiga mjög fræga aðdáendur. Lífið 18.3.2026 10:05
„Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ Finnur Bjarnason, óperustjóri nýrrar þjóðaróperu, skilur gagnrýni á ráðningu sína en telur sig þó ekki hafa haft forskot á aðra umsækjendur vegna stöðu sinnar. Mikilvægast sé að vera með hreina samvisku. Samvinna við Þjóðleikhússtjóra hafi gengið vel og trúir hann að muni ganga vel áfram. Lífið 18.3.2026 07:00
„Þetta var alltaf stóri draumurinn“ „Það er eiginlega bara í dag sem ég er að ná að setjast niður með þessu öllu saman,“ segir förðunarfræðingurinn Auður Jónsdóttir sem hefur verið búsett í Los Angeles síðastliðinn áratug. Síðastliðinn mánuð hefur hún fylgt Laufeyju Lín í Evróputúr stjörnunnar og farðað hana sem hún segir algjört draumaverkefni. Blaðamaður ræddi við Auði um þetta spennandi verkefni og tímamót í hennar lífi. Lífið 17.3.2026 20:00
Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Louis Theroux tæklar Karlahvelið (e. the Manosphere) í nýjustu heimildarmynd sinni en það er samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Theroux ræðir þar við menn sem hafa hagnast á slíku en á einum tímapunkti í myndinni bregður fyrir tveimur ungum íslenskum drengjum sem biðja um mynd með einum áhrifavaldinum. Lífið 17.3.2026 15:09
Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu Hvað kostar að taka bílpróf í dag? Hvað þarf að taka marga ökutíma og hversu margir falla á bóklega prófinu sem mörgum finnst hálfkvikyndislegt. Lífið 17.3.2026 12:00
„Jú, ég sá einhverja fræga“ Friðrik Hilmarsson var meðal þeirra sem fögnuðu innilega þegar norska kvikmyndin Sentimental Value var valin besta erlenda kvikmyndin. Friðrik er titlaður framleiðandi eða „executive producer“ myndarinnar en hann á að baki gott samstarf með leikstjóranum Joachim Trier. Lífið 17.3.2026 10:45
Villi Neto skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Taskmaster, eða Þrautakóngur á íslensku, hóf göngu sína á Sýn+ fyrir helgi. Þættirnir eru upprunalega frá Bretlandi og komu til sögunnar fyrir rúmlega áratug síðan og eru þáttaraðirnar þar orðnar tuttugu talsins. Lífið 17.3.2026 10:01
Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Slysa- og bráðlæknir segir vannýtt tækifæri innan heilbrigðiskerfisins í heilsueflingu og forvörnum. Hún telur venjur nútímasamfélagsins leiða til svokallaðrar „birtuvillu“ þar sem líkamsklukkan ruglast. Sjálf notar hún þá ekki sólarvörn en tekur fram að sólbruni geti haft alvarlegar afleiðingar. Lífið 17.3.2026 06:31
Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Hin tólf ára gamla Sóley Stella Ásbergsdóttir átti ógleymanlegt augnablik með Laufey í Kórnum um helgina þegar söngkonan gaf henni og sérsaumaðri tösku hennar sérstakan gaum fyrir framan þúsundir tónleikagesta og tileinkaði henni lag. Sóley segist aldrei munu gleyma augnablikinu. Lífið 16.3.2026 20:57
Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, hefur tryggt sér sæti í aðalkeppni Bocuse D’Or. Hún keppti í dag í stærstu kokkakeppni Evrópu og er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd. Þema hennar í keppninni var fjallkonan og íslenski þjóðbúningurinn. Lífið 16.3.2026 19:21
Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Skipuleggjendur risatónleika Laufeyjar útveguðu pylsustand baksviðs fyrir söngkonuna og teymið hennar en margir af erlendum samstarfsmönnum hennar voru afar spenntir fyrir því að smakka íslenska pulsu. Lífið 16.3.2026 18:47
Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls „Þetta er mjög gott í hjartað,“ segir Daníel Sæberg sem safnaði 2,7 milljónum á dögunum fyrir börn í sorg á Græna deginum. Daníel missti son sinn Jökul Frosta árið 2021 og hefur síðastliðin þrjú ár haldið Græna daginn á afmæli Jökuls. Lífið 16.3.2026 18:02
Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Friðrik Hilmarsson var meðal þeirra sem fögnuðu innilega þegar norska kvikmyndin Sentimental Value var valin besta erlenda kvikmyndin. Friðrik er titlaður framleiðandi eða „executive producer“ myndarinnar en hann á að baki gott samstarf með leikstjóranum Joachim Trier. Lífið 16.3.2026 14:15
Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Rúnar Freyr Gíslason, leikari og verkefnastjóri hjá Rúv, situr í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ekki fer á milli mála hvað er efst á baugi hjá Rúnari þessa dagana: Ekkert gauf og ekkert hálfkák. Pólitíkin á hug hans allan þessa dagana. Lífið 16.3.2026 13:11
Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Nafn fjölmiðlamannsins Alex Jones hefur á síðustu árum orðið samnefnari fyrir upplýsingaóreiðu og samsæriskenningar í bandarísku samfélagi. Jones hóf feril sinn í Austin í Textas á tíunda áratugnum, stendur á bak við vefmiðilinn og sölusíðuna Infowars og er þekktastur fyrir að boða skrautlegar samsæriskenningar þar sem ríkisvaldið svífst einskis til þess að blekkja almenning. Lífið 16.3.2026 13:01
Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Gríðarlega mikil gleði og fjör einkenndi samfélagsmiðlafærslur yfir síðastliðna viku og stjörnur landsins létu sig fæstar vanta á tónleika hjá stórstjörnunni okkar Laufeyju Lín. Lífið 16.3.2026 07:00
Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Starfsemi Félags eldri borgara á Selfossi hefur sjaldan eða aldrei verið eins öflug eins og í vetur enda er boðið upp á um 35 dagskrárliði alla vikuna. Stólaleikfimi, perlusaumur og Kínaskák njóta til dæmis mikilla vinsælda. Það nýjasta er að nú vilja eldri borgarar rauðvín með matnum á föstudögum en nautakjöt hefur verið tekið út af matseðlinum því það er svo erfitt að tyggja það. Lífið 15.3.2026 13:03