Tónlist

Fréttamynd

Allir gengu út af tón­leikunum: „Ég fór heim og grét“

„Ég var komin á fjórða lag og þá fer fólk að týnast úr salnum þangað til að hann er alveg tómur. Þetta var óþægileg tilfinning, ég þurfti að halda áfram, klára lagið og svo þurftum við að pakka öllu saman og fara. Ég fór heim og ég bara grét,“ segir tónlistarkonan Brynja Valdimarsdóttir um mjög mótandi lífsreynslu fyrir tæpum tveimur árum. Erfiðleikarnir urðu til þess að hún fékk nokkurs konar hugljómun og fann aukna trú á sjálfri sér.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“

Hljómsveitin Quarashi tróð upp fyrir smekkfullri Laugardalshöll á dögunum í tilefni af þrjátíu ára starfsafmæli en þar komu einnig fram margir af þekktustu tónlistarmönnum landsins.  Sölvi Blöndal, einn forsprakki sveitarinnar, hafði í viðtali lofað því að þetta yrðu stærstu tónleikar þeirra til þessa.

Tónlist
Fréttamynd

Sheeran bað að­dá­endur af­sökunar

Ed Sheeran bað aðdáendur sína afsökunar á því að hafa gert „mistök“ þegar hann hélt sína fyrstu tónleika eftir að rapparinn Macklemore var rekinn af tónleikaferð hans fyrir að lýsa yfir stuðningi við Palestínu á tónleikum þegar hann hitaði upp fyrir Sheeran.

Tónlist
Fréttamynd

„Verstur af öllu er hel­vítis doðinn, vera heima og vor­kenna sér“

Haraldur Ari Stefánsson, leikari og tónlistarmaður, gefur út sína fyrstu sólóplötu á næstu vikum og hefur þegar gefið út þrjár smáskífur sem eins konar smakkplatta af plötunni. Í dag kemur út tónlistarmyndband við smáskífuna „Tvær leiðir“ sem fjallar um það hvernig maður hefur alltaf val í lífi sínu.

Tónlist
Fréttamynd

Lifa í draumi og heiðra Eyfa

Hljómsveitin Lón með tónlistarmanninn Valdimar Guðmundsson í fararbroddi hafa sent frá sér ábreiðu af goðsagnakenndu íslensku dægurlagi. Tilgangur útgáfunnar er að heiðra Eyjólf Kristjánsson, sem er betur þekktur sem Eyfi.

Tónlist
Fréttamynd

Lauf­ey djammaði með Robyn og Troy Sivan

Stórstjarnan Laufey Lín er mætt til New York eftir stutt og gott stopp hér á Íslandi. Dagar tónlistarkonunnar eru sannarlega viðburðaríkir en um helgina skellti hún sér á tónleika hjá sænsku poppstjörnunni Robyn og átti góðar stundir með henni að þeim loknum.

Tónlist
Fréttamynd

HAM boða enda­lok alls

Þungarokkshljómsveitin HAM er um þessar mundir að leggja lokahönd á nýja breiðskífu sem vonast er eftir á streymisveitu í október og á tvöföldum vínyl í nóvember. Platan heitir Endalok alls og er sú ellefta sem sveitin sendir frá sér.

Tónlist
Fréttamynd

Af­þakkar Grammy-tilnefningu

Sænska poppstjarnan Zara Larsson vill ekki vera tilnefnd sem besti nýliðinn á Grammy-verðlaunahátíðinni 2027. Ástæðan er einföld, hún er enginn nýgræðingur í tónlistinni.

Tónlist
Fréttamynd

Miley losar sig við eftir­nafnið

Poppstjarnan Miley Cyrus stendur á tímamótum fyrir útgáfu tíundu plötu sinnar. Hún virðist hafa ákveðið að losa sig við eftirnafn sitt og ætlar greinilega einungis að nota listamannsnafnið Miley héðan af. 

Tónlist
Fréttamynd

Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu

Stemmingin var rífandi góð þegar Nova fagnaði útgáfu ábreiðunnar „Einhver elskar mig“ eftir Tatjönu í Bíó Paradís. Dýnamíska dúóið Cyber hitaði upp fyrir Tatjönu sem flutti síðan útgáfu sína af sígildum smelli Páls Óskars auk fleiri laga.

Tónlist
Fréttamynd

Highway 61 Revisited fagnar 61 árs af­mæli

Sjötta plata tónlistarmannsins Bobs Dylan, Highway 61 Revisited, kom út þann 30. ágúst 1965, fyrir 61 ári og einum degi, og olli straumhvörfum í rokktónlist. Platan markaði tímamót á ferli Dylan sem færði sig með plötunni úr órafmagnaðri þjóðlagatónlist í rafmagnað rokk.

Tónlist
Fréttamynd

Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjar­veru

Danstónlistardrottningarnar í hljómsveitinni Sísí Ey eru mættar aftur með splunkunýtt lag. Tíu ár eru frá því að hljómsveitin gaf síðast út efni en hún sló eftirminnilega í gegn árið 2013 með smellinum Ain’t Got Nobody.

Tónlist
Fréttamynd

Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu

Dansútgáfa af Madonnu smellinum Like a Prayer hefur orðið eitt vinsælasta lag Ástralíu, þótt enginn söngvari hafi flutt lagið. Röddin og trommurnar voru búnar til með gervigreind og velgengni lagsins hefur nú orðið kveikjan að nýjum reglum um ástralska vinsældalista.

Tónlist
Fréttamynd

Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr

Plötusnúðurinn DJ Margeir varð innblásinn af stjörnulögfræðingnum Villa Vill og lét smella af sér mynd á skýlu og Versace-skyrtu í Hótel Keflavík. Ljósmyndin gat af sér lagið „Strike a Pose (I'm Wearing Versace)“ með rapparanum Magugu sem þeir frumfluttu á Menningarnótt. Margeir ætlar svo að taka lagið enn lengra og búa til skúlptúr eftir ljósmyndinni.

Tónlist
Fréttamynd

Fór á fimm tón­leika Ariönu Grande á viku

„Ég held þetta sé komið upp í sjötíu tónleika núna, allt á síðustu rúmu fjórum árum,“ segir Heimir Ingi Róbertsson, tónleikaáhugamaður með meiru og starfsmaður á hjúkrunarheimili. Heimir hefur flogið víða um heim til að sækja fjölbreytta tónleika og segir þetta klárlega mikla ástríðu hjá sér.

Tónlist
Fréttamynd

Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak

Þungarokkssveitin Dimma hefur fundið sér nýjan söngvara, hinn kólombísk-íslenska Ivan Mendez, eftir að Stefán Jakobsson hætti í sveitinni vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal. Dimma vinnur þessi dægrin að sjöundu breiðskífu sinni og gaf út fyrsta lagið af henni í dag.

Tónlist
Fréttamynd

Kanye treður upp í Rúss­landi

Rapparinn Ye, betur þekktur sem Kanye, West heldur tvenna tónleika í Sankti Pétursborg í Rússlandi í október. West er stærsti tónlistarmaðurinn sem treður upp í landinu síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Á síðustu árum hafa nöfn á borð við Jason Derulo, DaBaby, Flo Rida, Akon og Timbaland komið þar fram.

Tónlist
Fréttamynd

Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð

Írski söngvarinn Hozier var einn þeirra fjölmörgu sem lögðu leið sína til Íslands í síðustu viku þegar almyrkvi gekk fyrir sólu miðvikudaginn 12. ágúst síðastliðinn. Tónlistarmaðurinn nýtti tímann vel og fór meðal annars á tónlistarhátíðina EFTIR sem vinur hans Colm O'Herlihy hélt ásamt samstofnendum Inni music og fleiri vel völdum.

Tónlist