„Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Formaður Félags íslenskra hljómlistamanna segir íslenska tónlist eiga undir högg að sækja á streymisveitunni Spotify. Á sama tíma heyja tónlistarmenn stríð við ógrynni af gervigreindartónlist sem flæðir inn á streymisveituna. Tónlist 13.7.2026 20:32
Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Kryddpían Mel C var næstum því rekin úr stúlknabandinu Spice Girls eftir orðaskak við samstarfskonu sína Viktoríu Beckham. Þetta gerðist eftir BRIT verðlaunahátíðina fyrir tuttugu árum síðan en Mel C rifjaði atvikið upp í hlaðvarpi á dögunum. Tónlist 13.7.2026 13:31
Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Fyrir átta árum kynntist heimurinn sænska táningnum Gretu Thunberg og nú ætlar litla systir hennar, hin tvítuga Beata Ernman Andersson, að fanga athygli heimsins. Systurnar eru eins og svart og hvítt, Greta er alvarlegur aðgerðasinni meðan Beata er flippuð tónlistarkona sem elskar að fara í spíkat og stefnir á að verða heimsfræg poppstjarna. Tónlist 13.7.2026 12:23
Halldór Haraldsson er látinn Halldór Haraldsson, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lést í gær, þann 29. júní, þá 89 ára gamall. Foreldrar hans voru Haraldur Halldórsson og Hólmfríður Gísladóttir en hann lætur eftir sig eiginkonu, tvö börn, barnabörn og barnabarnabörn. Tónlist 30.6.2026 17:14
Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Söngkonan Laufey Lín er lofsungin af starfsmönnum kínverska sendiráðsins á Íslandi. Laufey Lín er stödd í Kína þessa dagana á tónleikaferðalagi. Tónlist 27.6.2026 14:02
Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar sem hefur sett svip sinn á skemmtanalíf höfuðborgarbúa síðustu sumur en í ár eru tíu ár frá því að hátíðin var fyrst haldin. Meðal þeirra sem fram koma á opnunarkvöldi hátíðarinnar þetta árið er hljómsveitin Botnleðja en hátíðin stendur yfir þrjá daga í viku fram að frídegi verslunarmanna. Tónlist 25.6.2026 22:25
Quarashi hyggst „Do it again“ Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi. Tónlist 24.6.2026 15:56
Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Poppstjarnan knáa Olivia Rodrigo hefur sett á laggirnar tónlistarhátíð í Kaliforníu þar sem einungis tónlistarkonur koma fram. Rodrigo stígur sjálf á stokk ásamt úrvalsliði einhverra öflugustu tónlistarkvenna í heimi. Tónlist 23.6.2026 10:01
Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Clive Davis, tónlistarmógúllinn sem gegndi lykilhlutverki í velgengni listamanna á borð við Whitney Houston, Bruce Springsteen og Arethu Franklin, er látinn, 94 ára að aldri. Hann var um áratugaskeið meðal valdamestu manna í bandarískum tónlistariðnaði. Tónlist 22.6.2026 19:17
Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Stuðsveitin Retro Stefson kom, sá og sigraði á tónleikum í tívolíinu í Kaupmannahöfn á 17. júní. Fjöldi Íslendinga í Danmörku stigu trylltan dans ásamt fjölbreyttum hópi aðdáenda og Succession leikarinn Jeremy Strong lét sig ekki vanta. Tónlist 22.6.2026 17:01
Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Bergmál á Þingvöllum nær alla leið heim í stofu þar sem tónlistarhátíðinni verður útvarpað á Bylgjunni í dag. Hlusta má á útsendinguna í spilaranum hér að neðan en útsendingu lýkur klukkan 16:00 á Bylgjunni. Tónlist 20.6.2026 14:16
Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlistarupptökustjórinn Tay Keith, sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og unnið með tónlistarmönnum á borð við Drake, Travis Scott, Eminem og Beyoncé, fannst látinn í íbúð sinni í Nashville Tennessee á dögunum. Á síðasta ári var Keith á 30 Under 30 Music lista Forbes. Tónlist 19.6.2026 10:20
Hipsumhaps rýfur þögnina „Við erum búin að leggja mikla vinnu í þessa plötu og hlökkum til að deila henni með ykkur. Vonandi hlustið þið með opnu hjarta,“ segir Fannar Ingi Friðþjófsson, jafnan kenndur við hljómsveitina Hipsumhaps. Breiðskífan Algrím hjartans, nýjasta plata sveitarinnar, kom út á öllum helstu streymisveitum í gær, á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní. Tónlist 18.6.2026 09:02
„Ég er skíthræddur“ Útvarpsstjörnurnar og tónlistarmennirnir Guðjón Smári og Jóna Margrét skelltu sér í bústað fyrir nokkrum vikum og sköpunargleðin lék lausum hala. Útkoman varð að fullt af nýrri tónlist og þar á meðal fæddist lagið Burt af klúbbnum. Tvíeykið frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið. Tónlist 17.6.2026 11:31
Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Hollenski píanóleikarinn og tónskáldið Joep Beving flytur verk af nýrri plötu sinni ásamt völdum verkum úr fyrri útgáfum í Fríkirkjunni í september. Beving hefur síðustu ár starfað sem píanisti en var fyrir það í auglýsingum. Hann leitaði aftur í tónlist eftir að hafa farið í kulnun og segir það í raun lán í óláni, þá hafi hann fundið leið til að gera það sem hann raunverulega langaði að gera. Tónlist 17.6.2026 07:04
Bonnie Tyler vöknuð úr dái Velska söngkonan Bonnie Tyler er vöknuð úr dái en er enn stödd á gjörgæslu í Portúgal. Tyler var flutt með hraði á sjúkrahús í Faro í byrjun maí vegna garnarofs og var henni haldið í dái til að stuðla að bata hennar. Tónlist 16.6.2026 11:05
Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Rapparinn og tónlistarmaðurinn Swae Lee, sem er þekktastur fyrir lögin „Unforgettable“ með French Montana og „Sunflower“ með Post Malone og sem annar helmingur rapptvíeykisins Rae Sremmurd, heldur tónleika í Austurbæjarbíói þann 15. ágúst næstkomandi. Tónlist 11.6.2026 10:01
Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng „Ég er virkilega spennt að halda áfram að gefa út tónlist í þessum stíl,“ segir poppstjarnan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN. Hún frumsýnir hér tónlistarmyndband ásamt rapparanum Birni við splunkunýtt lag sem heitir Vilt fá. Tónlist 10.6.2026 11:31
Madonna með heitustu dansmynd ársins Poppstjarnan Madonna var að senda frá sér framúrstefnulega og sjóðheita tónlistarmynd þar sem margar áhugaverðar dægurmenningarstjörnur koma fyrir. Madonna, sem er 67 ára, slær ekki slöku við í tónlistarbransanum, er að gefa út breiðskífuna „Confessions II“ í júlí og er sannkölluð danssenu-drottning. Tónlist 9.6.2026 10:07
Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Drake hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður heims síðustu fimmtán ár. Lítið hefur þó farið fyrir honum síðan harðvítugar rappdeilur hans við Kendrick Lamar náðu hápunkti fyrir tveimur árum síðan. Þangað til um miðjan síðasta mánuð þegar Drake gaf út þrjár plötur sama daginn. Plöturnar ruku upp á topp vinsældarlista en viðbrögð gagnrýnenda hafa verið misjöfn. Vísir heyrði hljóðið í þremur dyggum rapphlustendum til að ræða plöturnar og stöðu Drake. Tónlist 9.6.2026 07:02
Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Breski tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Talay Riley, sem samdi lög fyrir tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Usher og Chris Brown, er látinn, 35 ára að aldri, eftir að hafa verið stunginn margsinnis með hnífi í Silvertown í austurhluta Lundúna föstudaginn 5. júní. Tónlist 8.6.2026 16:27
„Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Mikið fjör var á afmælistónleikum Bubba Morthens í Laugardalshöll í gær. Uppselt var á tónleikana og tók hinn sjötugi Bubbi alla sína helstu slagara. Tónlist 7.6.2026 20:58
„Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Emilíana Torrini segist hafa upplifað ofsafenginn sviðskvíða frá því hún hóf tónlistarferil sinn fyrir þrjátíu árum. Það hafi verið galið að verða fræg sautján ára gömul og ótrúlegt hvað fólk hafi leyft sér markalaus og öfgafull samskipti við hana. Þegar hún byrjaði að svara fyrir sig lenti hún í slagsmálum við mun eldri hjón niðri í bæ. Tónlist 7.6.2026 09:01
Peabo Bryson er látinn Söngvarinn Peabo Bryson er látinn 75 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að hafa sungið Óskarsverðlaunadúettinn „Beauty and the Beast“ með Celine Dion úr samnefndri kvikmynd og „A Whole New World“ með Reginu Belle úr Aladdin. Tónlist 3.6.2026 10:47