Fótbolti

Spán­verjar heims­meistarar

Spánn varð í kvöld heimsmeistari í fótbolta karla í annað sinn eftir 1-0 sigur á Argentínu í framlengdum úrslitaleik á MetLife-leikvanginum í New Jersey. Ferran Torres skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar.

Fótbolti

„Frá­bært að vera komnar á sigurbraut aftur“

„Mér líður frábærlega. Það er frábært að vera komnar á sigurbraut aftur eftir erfiðan síðasta leik, 3-2 tap, svo það er flott að ná í 2-1 sigur í dag.“, sagði Erin Flurey, leikmaður Þór/KA, eftir 2-1 sigur gegn ÍBV þar sem hún skoraði fyrsta mark leiksins og átti góðan leik.

Íslenski boltinn

„Satt best að segja er mér drullusama“

Óskar Hrafn Þorvaldsson hafði lítið út á sitt lið að setja eftir frábæran 5-0 sigur liðsins á Stjörnunni í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Honum er sama um að hafa haldið hreinu og leitar ekki Ozempic lausna á markaðnum.

Íslenski boltinn

„Mér fannst þetta ekki víti“

Hans Viktor Guðmundsson, varnarmaður KA, var svekktur með vítið sem hann fékk dæmt á sig og leiddi til jöfnunarmarks ÍBV í 2-2 jafntefli liðanna í 15. umferð Bestu deildar karla. Hann segir dómarann hins vegar hafa hárrétt fyrir sér í rauða spjaldinu sem ÍBV fékk.

Íslenski boltinn

„Ég þakkaði bara Guði“

„Alltaf gaman að vinna, en extra gaman að koma til baka aftur,“ sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, eftir 1-2 seiglusigur á Víkingum í botnbaráttuslag í Víkinni í dag.

Íslenski boltinn

„Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“

„Alltaf gaman að spila við KR, eitt stærsta lið landsins og alltaf gaman að kljást við þá,“ segir Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, fyrir heimsóknina á Meistaravelli síðar í dag. Stjarnan getur stokkið upp í efri hluta deildarinnar með sigri en mun þurfa að sigrast á þreytunni og líklega gera það án fyrirliða síns, Guðmundar Kristjánssonar.

Íslenski boltinn

Svein­dís skoraði í þriðja sigur­leiknum í röð

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði annað mark Angel City FC í 0-2 útisigri gegn Chicago Stars FC. Englarnir hafa nú unnið þrjá leiki í röð og eru komnir upp í 7. sæti deildarinnar. Sveindís Jane er komin með tvö mörk í þremur leikjum eftir meiðsli.

Fótbolti

Saka með þrennu í ó­trú­legum bronsleik

Bukayo Saka skoraði þrennu þegar England sigraði Frakkland, 4-6, í leiknum um 3. sætið á HM í fótbolta í Miami í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem Englendingar vinna til bronsverðlauna á HM og um er að ræða besta árangur enska liðsins síðan það varð heimsmeistari 1966.

Fótbolti

„Ég er bara í brjáluðu skapi“

Rúnar Kristinsson var ósáttur við sína menn í liði Fram þrátt fyrir 3-2 sigur á Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fram komst þó upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum.

Íslenski boltinn

„Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verk­efna“

„Þetta var ekki góður leikur hjá okkur, mikið af tæknifeilum. Við vorum bara ekki líkir sjálfum okkur. Við vorum að taka góð hlaup bak við vörnina og þá var sendingin kannski of löng, þannig einfaldar sendingar voru að klikka.“ sagði Sölvi Geir Ottesen Jónsson þjálfari Víkings eftir fyrsta tapleik liðsins í Bestu deildinni í sumar gegn Þór á Akureyri í dag, 2-1. 

Íslenski boltinn