Innlent

Höggið verði mikið fyrir ríkis­stjórnina segi þjóðin nei

Það verður mikið högg fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei við aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Niðurstaðan muni hafa mikil áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið að sögn stjórnmálafræðings og þar verði Samfylkingin ekki undanskilin þrátt fyrir að hún hafi ekki beitt sér mikið í málinu.

Innlent

Engar vís­bendingar um kvikusöfnun en ríf­lega sjö hundruð skjálftar

Íbúar á suðvesturhorni landsins fundu margir vel fyrir snörpum jarðskjálfta sem reið yfir á öðrum tímanum í dag. Benedikt Halldórsson, fagstjóri jarðskjálftavár á Veðurstofu Íslands, segir skjálftana vera hluta af því sem kalla mætti „hefðbundna jarðskjálftavirkni vegna flekahreyfinga“ og að það séu engar vísbendingar um kvikusöfnun og þar af leiðandi ekki von á eldgosi bráðlega.

Innlent

Fleiri bitnir af hundunum

Tveir lausir Border Collie-hundar réðust á fólk við Reynisvatn í Grafarholti um helgina. Þá fóru í það minnsta tvö upp á slysadeild í kjölfar árásanna en nú hafa fleiri sögur sem hljóða svipað litið dagsins ljós. Fjöldi fólks hefur lýst áhyggjum af þessum hundum og hafa margir sagt eiganda þeirra vanhæfan. Mál þar sem hundar bitu fólk rötuðu inn á borð MAST um helgina og var á laugardaginn kallað á lögregluna vegna hundanna.

Innlent

Hags­munir barna á­gæt­lega tryggðir í „baga­legu óyndisúrræði“

Snorri Másson þingmaður sem blístrað var á og hrópað á meðan hann stóð í ræðustól Alþingis segist skilja að fólk hafi mikla sannfæringu fyrir sínum málstað en að jaðarskoðanir á hlutverki stjórnvalda í landamæraeftirliti vegi þyngra en hagsmunagæsla barna í augum þess hóps sem hefur lagst hvað harðast gegn frumvarpinu.

Innlent

„Þá þurfum við að gera miklu betur“

Geðheilbrigðismálum innan fangelsiskerfisins er stórlega ábótavant að mati framkvæmdastjóra Geðhjálpar. Lögmaður manns sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði um helgina kallar eftir því að eftirlit og geðheilbrigðisþjónusta innan fangelsa verði rannsökuð. 

Innlent

Skortur á að­stoð, mót­mæli og högg­staður á ríkis­stjórn

Lögmaður manns sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði um helgina kallar eftir því rannsókn verði hafin á eftirliti og geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsa. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum og ræðum við framkvæmdastjóra Geðhjálpar sem segir að fangar fái ekki aðstoð við hæfi.

Innlent

Enn ekkert spurst til Hákonar

Enn hefur ekkert spurst til Hákonar Þórs Elmers, hins 53 ára föður sem hvarf sporlaust af flugvelli í Búdapest í apríl. Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, vekur nú athygli á mannshvarfinu en Hákon er bróðursonur hans. 

Innlent

Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022

Skjálftinn sem fannst á suðvesturhorninu klukkan korter í tvö og mældist 4,5 að stærð átti upptök sín vestur af Húsmúla við Hellisheiði. Náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands, Jóhanna Malen Skúladóttir, segir skjálftann vera þann stærsta á svæðinu síðan 2022. 

Innlent

Mót­mælendur trufluðu þingfund

Mótmælendur trufluðu þingfund dagsins þegar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, tók til máls um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Hlé var gert á fundinum.

Innlent

Mynda­taka í lágloftunum vekur at­hygli

Tvær þotur sem flogið hefur verið yfir Suðurlandi í dag hafa vakið töluverða athygli íbúa. Flugvélunum var flogið tiltölulega lágt og virtust þær mjög nálægt hvorri annarri. Síðustu daga hefur þeim verið flogið víða um land.

Innlent

Syngjandi dúx

Ína Berglind Guðmundsdóttir er dúx Menntaskólans á Egilsstöðum. Hún brautskráðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,92. Alls voru 47 nemendur brautskráðir frá ME laugardaginn 23. maí. 

Innlent

Vaknaði við há­vaða og raddir úr næsta her­bergi

Húsráðandi á Kársnesi í Kópavogi sem vaknaði upp við innbrotsþjófa sem brutust inn til hans um miðja nótt segist vera hugsi yfir hugrekki þjófanna sem virtu Securitas miða að vettugi áður en þeir létu til skarar skríða. Hann segist þakklátur fyrir að hafa verið einn heima enda sitji atburðarásin enn í honum.

Innlent

Segir Ragnar Þór af­hjúpa van­þekkingu á skóla­starfi

Jón Pétur Zimsen, Sjálfstæðisflokki, gerði fjárframlög ríkisins til framhaldsskóla að umfjöllunarefni í óundirbúnum fyrirspurnum. Til svara var Ragnar Þór Ingólfsson, staðgengill Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, en Jón Pétur taldi svör hans ekki margra fiska virði.

Innlent

Flug­maður hjá Icelandair opnar bók­haldið

Flugmaður hjá Icelandair segir ekki við flugmenn að sakast að þeir vilji ekki selja frá sér kjarasamningsbundna frídaga. Þeir séu aðeins níu í hverjum mánuði og ekki sé hægt að byggja rekstur heils flugfélags á að stöðugt sé gengið á þá.

Innlent

„And­rúms­loftið er þungt og það eru allir slegnir“

Fangelsismálastjóri segir andrúmsloftið þungt innan veggja fangelsins á Hólmsheiði eftir að maður lést þar um helgina. Bæði starfsfólk og fangar séu harmi slegnir. Sá látni var ekki í einangrun og ekki er grunur um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. 

Innlent

Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni

Á fimmta hundrað jarðskjálftar hafa mælst í jarðskjálftahrinu á Hellisheiði sem hófst í gærmorgun. Að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni eru engin merki um að eitthvað sé að draga úr hrinunni en stærsti skjálfinn sem mælst hefur var 3,3 að stærð.

Innlent

Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu

Níu ára drengur og bekkjarsystkini hans hringdu eftir aðstoð þegar að eldri maður gerði ítrekað tilraunir til að lokka þau með sér úr búð í hverfi 104. Þá segir móðir hans frá því að hún vilji ekki ímynda sér hvað gæti hafa gerst ef einhvert þeirra hefði fallist á að fara með honum.

Innlent

Tveggja bíla á­rekstur á Suður­lands­braut

Tveggja bíla árekstur varð rétt eftir klukkan níu í kvöld þegar fólksbílar rákust á ofan við hringtorgið sem liggur að beygjunni inn á Suðurlandsbraut. Þá var umferð um gatnamótin stýrt af lögreglunni sem lokaði fyrir umferð í vestur um stund en hefur nú opnað aftur fyrir alla umferð. 

Innlent

Tvö á slysa­deild eftir á­rás lausra hunda

Maður og kona sem fóru út að njóta veðursins í dag við Reynisvatn í Grafarholti fóru á slysadeild eftir að lausir hundar bitu þau til blóðs. Hundarnir voru tveir og af tegundinni Border Collie en eigandi þeirra var með þriðja hundinn í taum á göngu við Reynisvatn í Grafarholti. 

Innlent

Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni

Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð.

Innlent

Senda loft­belgi á loft á hálf­tíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir

Bandarískir vísindamenn munu nýta loftbelgi til að gera mælingar, sem fjármagnaðar eru af geimferðastofnuninni NASA, á andrúmsloftinu yfir Íslandi. Mælingarnar verða framkvæmdar meðan á sólmyrkvanum stendur í ágúst og snúast um að kanna áhrif myrkvans á lægsta lag veðrahvolfsins. Vísindamennirnir hafa notið aðstoðar Háskóla Íslands, Sævars Helga Bragasonar og fleiri sérfræðinga hérlendis.

Innlent

Undir­búa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála

Veitur hafa stöðvað borun í Skammadal og vinna nú að undirbúningi upplýsingafundar fyrir íbúa og hagaðila í kjölfar umræðu um mengun í Varmá. Leit að heitu vatni í dalnum, sem er í Mosfellsbæ, hefur valdið litabreytingum á vatninu í ánni. Á vef Veitna segir meðal annars að áhrif á ánna hafi orðið meiri en áætlað var við upphaf framkvæmdanna.

Innlent