Innlent
27 28 29 30 31 32 33 34 35 … 334 ›
Rannsaka hvort dauðsfall megi rekja til falsaðs Xanax Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar dauðsfall þar sem grunur leikur á að inntaka á fölsuðum Xanax-pillum hafi leitt til andlátsins. Innlent 27.1.2025 20:21
Kennaraverkföll: Hvenær, hvar og hve lengi? Kennaraverkföll hefjast að óbreyttu laugardaginn 1. febrúar í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum. Fréttastofa tók saman hvar og hvenær verkföll eru fyrirhuguð og hvort um tímabundin eða ótímabundin verkföll í hverjum skóla fyrir sig er að ræða. Innlent 27.1.2025 19:28
Myndi setja ríkisstjórnina í „algjöra úlfakreppu“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir flokkinn ekki geta endurgreitt greiðslur úr ríkissjóði sem hann hefur fengið undanfarin ár, þrátt fyrir að uppfylla ekki lagaleg skilyrði um skráningu sem stjórnmálaflokkur. Verði flokknum gert að endurgreiða peningana muni flokkurinn fara í þrot. Innlent 27.1.2025 19:26
Endurgreiðsla sem jafngildi gjaldþroti og íbúafundur Alls hafa fimm stjórnmálaflokkar fengið greiðslur úr ríkissjóði þrátt fyrir að uppfylla ekki skilyrði laga um skráningu sem stjórnmálasamtök. Flokkur fólksins er eini flokkurinn sem enn hefur ekki breytt skráningu sinni en formaður segir flokkinn munu fara í þrot, verði honum gert að greiða fjárhæðirnar til baka. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við prófessor í stjórnmálafræði í beinni um mögulegar pólitískar afleiðingar málsins. Innlent 27.1.2025 18:03
Fyrrverandi bæjarstjóri verður framkvæmdastjóri þingflokks Þingflokkur Viðreisnar hefur ráðið til sín þrjá nýja starfsmenn og er starfslið flokksins þar með fullmannað. Í starfsmannahópnum eru fyrrverandi bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, lögfræðingur, sálfræðingur og verkefnastjóri. Innlent 27.1.2025 17:21
Kærði lögregluna en málið ekki rannsakað af öðrum en lögreglunni Karlmaður segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við Héraðssaksóknara, sem hefur beint kæru mannsins á hendur Lögreglunni í Vestmannaeyjum til meðferðar hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum. Innlent 27.1.2025 16:30
Borgarstjóri tók við tæplega 3000 undirskriftum vegna Álfabakka Íbúar í Árskógum 7, fjölbýlishúsi Búseta sem er við hliðina á „græna gímaldinu“ svokallaða í Breiðholti, afhentu borgarstjóra undirskriftalista í íbúð formanns húsfélagsins í dag. Þeir sem rita undir vilja að framkvæmdir við húsið verði stöðvaðar og undirskriftir eru vel á þriðja þúsund. Innlent 27.1.2025 16:10
Ráðherra hringdi í skólastjóra vegna týnds skópars Inga Sæland félags- og húsnæðismálamálaráðherra mun hafa sagst hafa ítök í lögreglunni þegar hún hellti sér yfir skólastjóra Borgarholtsskóla vegna týnds skópars barnabarns hennar. Skórnir komu í leitirnar en ekki vegna pressu ráðherra. Inga segir málið ekki koma Vísi við. Innlent 27.1.2025 14:28
Kristrún upplýst um fundinn með skömmum fyrirvara Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands var látin vita af skyndifundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Kaupmannahöfn sem fram fór í gær um Grænland og öryggismál sama dag og fundurinn var haldinn. Í svörum frá forsætisráðuneytinu segir að fundurinn hafi verið haldinn í tengslum við minningarathöfn í Auschwitz þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er fulltrúi Íslands en ekki Kristrún. Innlent 27.1.2025 13:49
Óhapp á Reykjavíkurflugvelli og flugbraut lokað Flugbraut á Reykjavíkurflugvelli var lokað í kjölfar þess að flugvél fór út af braut við lendingu. Um var að ræða litla kennsluvél sem hlekktist á í lendingu samkvæmt upplýsingum frá Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúa ISAVIA. Atvikið átti sér stað um klukkan 11 í dag. Einn var um borð í vélinni. Innlent 27.1.2025 12:42
Óvíst hvenær fundað verður aftur Enginn fundur hefur enn verið boðaður í kjaradeilu kennara og ríkis og sveitarfélaga en verkföll skella á að óbreyttu eftir viku. Ríkissáttasemjari segir óvíst hvenær fundað verður aftur. Innlent 27.1.2025 11:51
Engin leit í gangi að leðurblökunni Dýraþjónusta Reykjavíkur hefur ekki fengið neinar tilkynningar í dag um leðurblökuna sem lék lausum hala í Reykjavík í gær. Greint var frá því um helgina að leðurblaka hefði sést við Laugardalslaug og nærri Listaháskólanum í Laugarnesi. Innlent 27.1.2025 11:42
Styrkjamálið vindur upp á sig Í hádegisfréttum fjöllum við um styrkjamál stjórnmálaflokkanna en það var ekki bara Flokkur fólksins sem klikkaði á því að breyta skráningu sinni eins og lög gera ráð fyrir. Innlent 27.1.2025 11:42
Þáðu líka styrk án réttrar skráningar Fleiri stjórnmálaflokkar en Flokkur fólksins hafa þegið framlög úr ríkissjóði án þess að uppfylla skilyrði laga um skráningu sem stjórnmálasamtök. Til að mynda þáði Sjálfstæðisflokkurinn 167 milljónir króna árið 2022, rétt áður en skráningu flokksins var breytt. Innlent 27.1.2025 11:32
Gerði ekki samkomulag við Þórdísi um formannsframboðið Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt og ljóst að mikla vinnu þurfi innan flokksins til að endurheimta það. Flokkurinn sé samt langt því frá að vera brotinn. Með mikinn stuðning í grasrót og fjölda sveitarstjórnarfulltrúa. Það séu fjórtán þingmenn, sem mætti vera fleiri, en þau séu með skýra hugsjón. Innlent 27.1.2025 09:10
Formannsefnið sem á ekki bara erindi við Mjóddina Eitthvert alverst geymda leyndarmál íslenskra stjórnmála var afhjúpað í gær. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins. Á svæðinu voru gamlar kempur úr flokknum, stuðningsmenn annarra formannsefna, en enginn úr þingflokknum nema Áslaug sjálf. Vísir var á svæðinu. Innlent 27.1.2025 09:00
Fann að eitthvað væri á seyði þegar hann skoðaði efnin Lykilsönnunargagn í stórfelldu fíknefnamáli er myndefni úr leynilegri upptöku lögreglu. Þetta myndefni var sýnt í aðalmeðferð málsins sem fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Í málinu eru þrír menn ákærðir fyrir vörslu mikils magns MDMA sem er samanlagt talið hljóða upp á 25 þúsund neysluskammta. Innlent 27.1.2025 08:46
Bíða þess að samningur um neyslurými verði endurnýjaður Frá því að neyslurýmið Ylja opnaði í ágúst á síðasta ári hafa um 140 einstaklingar leitað þangað. Meðalaldur notenda er um 38 ára og flestir karlmenn. Verkefnið er tímabundið og rennur samningur við ráðuneytið um rekstur rýmisins út í apríl. Sigríður Ella Jónsdóttir, teymisstjóri skaðaminnkunar og félagslegra verkefna hjá Rauða krossinum, segir unnið hörðum höndum að því að endurnýja samninginn. Tölurnar sýni að þörfin sé mikil. Innlent 27.1.2025 06:47
Notendur ADHD-lyfja aldrei fleiri og kostnaðurinn aldrei meiri Notendur ADHD-lyfja hafa aldrei verið fleiri en í fyrra og kostnaður ríkisins vegna lyfjanna aldrei verið hærri. Ríflega 26 þúsund Íslendingar fengu ADHD-lyfjum ávísað og kostnaður ríkisins nam 2,1 milljarði króna. Innlent 27.1.2025 06:33
Neitaði að yfirgefa öldurhús og sparkaði í lögreglumann Lögregla var tvívegis kölluð til í gærkvöldi og nótt vegna einstaklinga sem voru til vandræða. Í öðru tilvikinu var um að ræða þrjá sem voru „með almenn leiðindi“ við aðra farþega í strætó og var þeim vísað út. Innlent 27.1.2025 06:22
„Það eru mikil tíðindi að verða í íslenskum stjórnmálum“ Stjórnmálaskýrandi telur ekki hægt að lesa í það að þingflokkur Sjálfstæðisflokks hafi verið fjarverandi á framboðsfundi Áslaugar Örnu. Hann telur miklar breytingar myndu fylgja Áslaugu sem yrði yngsti formaður í sögu flokksins. Innlent 26.1.2025 23:19
Leðurblaka flögrar um Hlíðarnar Lögreglu barst tilkynning um leðurblöku á flugi í hlíðunum í dag en þegar lögreglumenn mættu á vettvang hafði hún flogið á braut. Innlent 26.1.2025 21:51
Harður árekstur á Miklubraut Tveggja bíla árekstur varð á Miklubraut um níuleytið í kvöld. Einn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi en áverkar hans eru ekki taldir vera alvarlegir. Innlent 26.1.2025 21:37
Ekkert ökklaband fyrir brot á nálgunarbanni þrátt fyrir fyrirmæli ríkissaksóknara Þrátt fyrir fyrirmæli ríkissaksóknara fyrir tæpu ári hefur enginn ennþá þurft að bera ökklaband vegna ítrekaðra brota gegn nálgunarbanni því búnaðurinn er ekki til. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir þetta vonbrigði og spyr eftir hverju sé verið að bíða. Innlent 26.1.2025 21:00
Áslaug hafi þennan „x-factor“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir heitir því að verða formaður allra sjálfstæðismanna nái hún kjöri. Hún tilkynnti formannsframboð fyrir fullum sal af stuðningsfólki sínu í dag. Fyrrverandi og núverandi kjörnir fulltrúar flokksins segja Áslaugu boða nýtt upphaf fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 26.1.2025 19:18
Laugin muni ekki opna fyrr en í fyrsta lagi seinnipart mánudags Vesturbæjarlaug var áfram lokuð í dag og verður ekki opnuð fyrr en í fyrsta lagi seinnipart mánudags. Lauginni var lokað tímabundið í gær vegna netbilunar sem gerði það að verkum að öryggisbúnaður virkar ekki. Innlent 26.1.2025 18:31
Eldur á Álfhólsvegi Eldur kviknaði í bíl á Álfhólsvegi í Kópavogi á sjötta tímanum. Bíllinn er upp við bílskúr og annar bíll við hlið hans. Slökkvilið er langt komið með að ráða niðurlögum hans. Innlent 26.1.2025 18:20
Ekkert bólar á ökklaböndum og nýir tímar hjá Sjálfstæðisflokknum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir heitir því að verða formaður allra sjálfstæðismanna verði hún kjörin. Hún tilkynnti formannsframboð fyrir fullum sal af stuðningsfólki sínu í dag. Fyrrverandi og núverandi kjörnir fulltrúar flokksins segja Áslaugu boða nýtt upphaf fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 26.1.2025 18:18
Ekki ákveðið hvort hún ætli í varaformanninn ef hún tapar „Ég vona að flokkurinn fái val um fólk til að velja í forystuna. Ég hef sýnt að ég víla ekki fyrir mér að biðja um embætti og treysti mér til þess að sinna því, stíga inn í framtíðina og líta inn á við á sama tíma og ekki síst að vera öflugur málsvari sjálfstæðisstefnunnar. Og ég ætla að gefa sjálfstæðismönnum það val á landsfundi.“ Innlent 26.1.2025 17:00
Ýmislegt hægt að lesa í mætingu á fund Áslaugar Margt var um manninn í Sjálfstæðissalnum á NASA þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnti um framboð sitt til formanns flokksins í dag. Þó lét enginn þingmaður flokksins sjá sig. Innlent 26.1.2025 16:05