Innlent

Kalla inn próteinpopp

Fyrirtækið Iðnmark hf. hefur innkallað prótein popp en varan inniheldur mjólk sem ekki kemur fram í innihaldslýsingu hennar. 

Innlent

„Pólitísk á­kvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110

Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar segir mögulegt að hækka hámarkshraða á ákveðnum vegköflum í 110 kílómetra, séu þeir hannaðir með tilliti til þess. Tvöföldun vegarins milli Hvalfjarðar og Borgarness er þegar í samgönguáætlun, auk áframhaldandi uppbyggingar Suðurlandsvegar austur að Selfossi.

Innlent

Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks

Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af því að enn fleiri muni ánetjast veðmálum vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta og þróa með sér spilafíkn. Veðmálastarfsemi hafi verið venjubundin af stanslausri auglýsingaherferð og umræðu þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar.

Innlent

Ein­faldur seðill flýtir ekki lokatölum

Þrátt fyrir að einungis ein spurning verði á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst er ekki víst að lokatölur liggi fyrr fyrir en í hefðbundnum kosningum. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir rúma viku.

Innlent

Þúsundir Úkraínu­manna mót­mæla hrókeringum Selenskís

Þúsundir Úkraínumanna hafa í dag mótmælt í borgum víða í heimalandinu í kjölfar þess að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov óvænt taka pokann sinn í gær. Fedorov hafði verið ráðherra í hálft ár og ekki liggur fyrir hvers vegna hann var látinn fara.

Innlent

Ólafur ráðinn sveitar­stjóri Skaga­strandar

Ólafur Þór Ólafsson hefur verið valinn úr hópi sextán umsækjenda til að taka við starfi sveitarstjóra Skagastrandar. Gert er ráð fyrir að sveitarstjórn staðfesti ráðninguna þann 22. júlí næstkomandi og að Ólafur taki til starfa þann 1. ágúst 2026. 

Innlent

Geri for­eldra og börn að lög­brjótum

Þingmaður Miðflokksins segir að ný áform um samfélagsmiðlabann geri börn og foreldra að lögbrjótum þar sem ekki standi til að framfylgja lögunum á nokkurn hátt. Þingmaður Flokks fólksins vill meina að breytingin sé ekki samfélagsmiðlabann heldur verkfæri fyrir foreldra.

Innlent

Enginn fram­halds­skóla­kennari meti stöðu ný­nema mjög góða

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lokið fyrstu greiningu á stöðu námsefnis í stærðfræði grunn- og framhaldsskóla. Þrjátíu prósent kennara segja aðalnámsskrá styðja vel við skýra framvindu í námi og sextíu og tvö prósent framhaldsskólakennara meta stöðu nýnema frekar eða mjög veika. Lagt er til að stærðfræði verði skilgreind sem forgangsverkefni til næstu þriggja ára.

Innlent

MAST hafi farið gegn á­liti fagráðs um blóð­mera­hald

Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi krefjast þess að ákvörðun Matvælastofnunar um veitingu leyfis til blóðmerahalds verði felld úr gildi. Samtökin segja blóðtöku í blóðmerahald hérlendis fara langt yfir alþjóðleg viðmið og gangi nærri heilsu og velferð hryssanna. 

Innlent

Jafn­vel brotist inn þegar fólk er heima

Formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur segir íbúa hrædda um heimili sín. Gangi þeir svo langt að hringja í nágranna til að láta athuga heimili sín á meðan þeir eru á ferðalagi. Tugir innbrota hafa verið tilkynnt lögreglu það sem af er mánuði.

Innlent

„Þetta snýst ekki hrein­lega um bann heldur á­kveðna vernd“

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, var spurð út í nýja frumvarpið sem snýr að símabanni fyrir börn, fjórtán ára og yngri, í Reykjavík síðdegis en hún sagði það tilkomið eftir ákveðna vakningu hvað málið varðar hjá íslenskum stjórnvöldum. Bannið yrði vonandi orðið að veruleika fyrir næstu áramót en að það væri alfarið til þess hugsað að vernda börn.

Innlent

Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan

Síðustu daga hefur veðrið leikið við fólk á austurhluta landsins en á sama tíma hafa gular viðvaranir ríkt á vestanverðu landinu. Hiti fór víða yfir tuttugu og fimm gráður á Austfjörðum og Egilsstöðum um helgina og tjaldsvæði eru mörg hver að fyllast.

Innlent

Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu sam­félags­miðla­banni

Skiptar skoðanir eru á boðuðu samfélagsmiðlabanni fyrir 14 ára og yngri; þeir yngstu lýsa vonbrigðum en fullorðnir eru sáttir. Fjöldi ríkja hefur innleitt eða íhugað að innleiða aldurstakmark á samfélagsmiðla en árangurinn af því er misgóður. Tvær þingkonur ræddu einnig mögulega kosti og galla bannsins í kvöldfréttum Sýnar.

Innlent

Hefur á­hyggjur af smit­hættu í fargufum

Skortur er á því að almenn hreinlætisaðstaða sé við sumar fargufur og engin sem sótt hefur um leyfi fyrir fargufu hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands hefur uppfyllt slíka kröfu. Framkvæmdastjórinn hefur áhyggjur af mögulegri smithættu í gufunum.

Innlent