Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Árni Sæberg skrifar 20. október 2026 16:34 Héraðsdómur Vesturlands kvað upp dóm í málinu í gær. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur til 3,5 ára fangelsisvistar fyrir gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa tekið konuna kyrkingartaki en dómurinn taldi ekki sannað að hann hefði haft ásetning til þess að myrða konuna. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi í garð konunnar og einnig fyrir að nauðga barni.
Í dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi gagnvart sambýliskonu sinni á heimili þeirra með því að hafa reynt að svipta hana lífi árið 2026, en hann hafi slegið hana ítrekað í andlit með krepptum hnefa, rifið í hár hennar, setið klofvega yfir henni og haldið um vit hennar og háls þannig að hún átti erfitt með að anda og gripið um háls hennar með báðum höndum og þrengt þannig að öndunarvegi hennar í drjúga stund með þeim afleiðingum að hún hætti að geta andað og meðvitund hennar skertist. Við atlöguna hafi konan hlotið tvö sár og leðurhúðarblæðingar á hálsi, dílablæðingar á augnsvæðum og punktblæðingar í gómi, skrámur og sár á munnsvæði, slímhúðarsár á innanverðum vörum, áverka á hægri og vinstri kinn, þrota á hægra gagnaugasvæði og áverka aftast á hvirfilsvæði og hægri hluta ennis. Með háttsemi sinni hafi maðurinn ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar á alvarlegan hátt. Háttsemin sönnuð Í dóminum segir að konan hafi frá upphafi verið stöðug í framburði sínum um atlögu mannsins að sér. Þá hafi hún verið trúverðug í framburði sínum fyrir dómi og framburður hennar fái eindregna stoð í öðrum gögnum málsins og framburðum vitna fyrir dómi. Framburður mannsins hafi hins vegar verið ótrúverðugur og ekki í samræmi við gögn málsins. „Er það niðurstaða dómsins, með vísan til þessa, að hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi veist að brotaþola með þeim hætti sem lýst er í ákæru. Þá telur dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa, með vísan til læknisvottorðs læknis og matsgerðar réttarlæknis, og framburðar þeirra fyrir dómi að atlagan hafi valdið þeim áverkum á líkama brotaþola sem lýst er í ákæru.“ Því væri sannað að maðurinn hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann var sakaður um en þá kæmi til skoðunar hvort atlagan hafi leitt til þess að konan hafi hætt að geta andað og að meðvitund hennar hafi skerst, eins og lýst er í ákæru, og í framhaldi af því hvort brot mannsins verði heimfært undir ákvæði almennra hegningarlaga um tilraun til manndráps. Við það mat þyrfti að meta hvort ásetningur mannsins stæði til þess að konan létist. Varhugavert að áætla að hann hafi ætlað að drepa hana Þá segir í dóminum að framburður konunnar um það hvort hún hafi misst meðvitund eða hvort meðvitund hennar hafi skerst við atlögu mannsins hafi ekki verið að öllu leyti stöðugur og skýr. Þá hafi hún heldur ekki verið stöðug í framburði sínum um það hvort hún hafi hætt að geta andað, eins og lýst er í ákæru, þótt hún lýsi því að hún hafi ítrekað átt í erfiðleikum með að ná andanum meðan á atlögu mannsins stóð. Þegar litið er til framangreinds sé það niðurstaða dómsins að hvorki sé komin fyrir því lögfull sönnun að konan hafi hætt að geta andað við atlögu mannsins í umrætt sinn né að meðvitund hennar hafi skerst. „Þegar litið er til þessa og þess að ákærði hætti atlögunni þegar brotaþoli ber að hún hafi verið að fjara út og missa meðvitund telur dómurinn varhugavert að telja komna fram fulla sönnun fyrir því að ákærði hafi á verknaðarstundu haft ásetning til að bana brotaþola. Breytir þar engu framburður brotaþola fyrir dómi um að ákærði hafi hótað að drepa hana meðan á atlögunni stóð, en brotaþoli hafði ekki getið um þær hótanir á fyrri stigum málsins.“ Brot hans yrði því ekki heimfært sem tilraun til manndráps. Fyrir lægi þó í málinu að þau hefðu verið í sambúð á þeim tíma sem maðurinn réðst á konuna og því væri um brot í nánu sambandi að ræða. Þá hefði atlagan verið svo alvarleg að hún teldist sem stórfelld líkamsárás. Þrjú ár fyrir að nauðga barni árið 2023 Í dóminum segir að við ákvörðun refsingar hafi verið litið til sakavottorðs hans, þar sem komi meðal annars fram að hann hefði árið 2020 hlotið þriggja ára dóm í Landsrétti fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Þá hafi honum fyrr á þessu ári verið gert að sæta fangelsi í eitt ár fyrir þrjú brot í nánu sambandi gegn sömu konunni og umferðarlagabrot. Þá hafi verið litið til þess að árás mannsins hafi verið hrottaleg og að með henni hafi hann ógnað lífi, heilsu og velferð sambýliskonu sinnar. Hann eigi sér engar málsbætur. Með vísan til þessa sé refsing hans hæfilega metin fangelsi í 3,5 ár. Þá greiði hann konunni 1,2 milljónir í miskabætur og allan sakarkostnað málsins, 4,1 milljón króna.
Dómsmál Heimilisofbeldi Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Sjá meira