Golf
173 174 175 176 177 178 … 178 ›
Harrington hafði betur í bráðabana Frábær endasprettur Írans Padraig Harrington tryggði honum frækinn sigur á Dunlop Pheonix mótinu sem lauk í Japan í morgun. Harrington sigraði Tiger Woods í bráðabana eftir að sá síðarnefndi hafði farið illa að ráði sínum á lokasprettinum. Golf 19.11.2006 14:15
Þrautagöngu Birgis loksins lokið Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í gær fyrstur íslenskra kylfinga í karlaflokki til að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Golf 17.11.2006 13:30
B&L og GR semja um BMW mótaröðina Bílaumboðið B&L og GR gerðu nýlega með sér samstarfssamning um að GR sjái um framkvæmd alþjóðlegu mótaraðarinnar BMW Golf Cup International hér á landi. Samningurinn er til þriggja ára og er jafnframt sá fyrsti sem samningsaðilar gera með sér. Golf 16.11.2006 22:24
Birgir Leifur á Evrópumótaröðina Birgir Leifur Hafþórsson náði í dag langþráðum áfanga þegar hann varð fyrsti íslendingurinn í karlaflokki til að vinna sér sæti á Evrópumótaröð atvinnukylfinga á næsta ári. Birgir lauk keppni á þremur höggum undir pari á sjötta og síðasta hringnum á lokaúrtökumótinu á Spáni og verður því örugglega á meðal 30 efstu manna, sem tryggði sæti á Evrópumótaröðinni á næsta ári. Golf 16.11.2006 15:32
Birgir Leifur náði sér ekki á strik Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á 5. hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni. Birgir lék hringinn á 3 höggum yfir pari í dag og er því samtals á 2 yfir pari á mótinu. Hann er því í 45.-63. sæti á mótinu, en 30 efstu kylfingarnir tryggja sig á Evrópumótaröðina eftir 6. hringinn. Golf 15.11.2006 16:02
Birgir Leifur áfram Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk fjórða hringnum á lokaúrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina á einu höggi undir pari og er því í á meðal 30 efstu kylfinga á mótinu sem fram fer á Spáni. Tveir hringir eru óleiknir á mótinu og þar komast 30 af 70 efstu kylfingunum á Evrópumótaröðina á næsta tímabili og horfurnar því þokkalegar hjá Birgi. Golf 14.11.2006 16:15
Birgir Leifur á pari á Spáni Birgr Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á þriðja keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina í dag þegar hann lauk keppni á þremur höggum yfir pari og er því samanlagt á pari vallar. Hann er sem stendur í kring um 30. sætið á mótinu og á góða möguleika á því að komast í gegn um frekari niðurskurð. Golf 13.11.2006 15:25
Birgir Leifur í 11. sæti Birgir Leifur Hafþórsson er í mjög góðri stöðu eftir annan hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer á Spáni. Birgir lék á pari í dag og er því enn á þremur höggum undir pari sem skilar honum 11. sæti. Eftir frábæra byrjun í dag fataðist honum reyndar flugið og fékk hann tvo skolla á 16. og 17. braut. Golf 12.11.2006 15:38
Birgir Leifur byrjar vel Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG byrjaði mjög vel á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópsku mótaröðina sem fram fer á Spáni, en hann lék fyrsta hringinn í dag á 69 höggum eða 3 undir pari og er á meðal efstu manna á mótinu. 30 efstu kylfingarnir á mótinu tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni. Golf 10.11.2006 17:12
Ragnhildur úr leik á Ítalíu Ragnhildur Sigurðardóttir náði sér ekki á strik á þriðja degi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í dag þegar hún lék á 10 höggum yfir pari og er því úr leik á mótinu. Ragnhildur var á 17 höggum yfir pari samanlagt og endaði í 86.-90. sæti á mótinu en aðeins 65 keppendur náðu í gegn um niðurskurð inn á fjórða hring á morgun. Golf 10.11.2006 15:30
Ragnhildur á sjö yfir pari á Ítalíu Ragnhildur Sigurðardóttir náði sér ekki á strik í dag á öðrum keppnisdegi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi þegar hún lauk keppni á sex höggum yfir pari. Ragnhildur lék á höggi yfir pari vallarins í gær - 73 höggum. Ragnheiður var í 55.-64. sæti á mótinu en keppendum verður fækkað niður í 65 eftir keppni morgundagsins. Golf 9.11.2006 19:28
Azinger verður fyrirliði Kylfingurinn Paul Azinger hefur verið útnefndur fyrirliði Bandaríkjanna í Ryder keppninni sem fram fer í heimalandi hans eftir tvö ár. Azinger tekur við af Tom Lehman, sem var fyrirliði bandaríska liðsins sem tapaði stórt fyrir liði Evrópu fyrir nokkrum vikum. Golf 6.11.2006 19:36
Birgir Leifur í 7. sæti Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í 7. sæti á 2. stigi úrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina þegar leiknir hafa verið tveir hringir á Sherry vellinum á Spáni. Birgir lék á tveimur höggum undir pari í dag eins og í gær og er því í ágætri stöðu til að vinna sér sæti á lokaúrtökumótinu sem fram fer eftir viku. Golf 2.11.2006 19:37
Singh sigraði óvænt Indverjinn Milkha Singh sigraði óvænt á Volvo Masters mótinu í golfi sem lauk í dag og lauk keppni á tveimur höggum undir pari. Sigur Singh féll þó nokkuð í skuggann af æsispennandi baráttu um efsta sæti peningalistans á tímabilinu, en það tryggði Írinn Padraig Harrington sér í dag með góðum endaspretti. Hann hafnaði í öðru sæti Volvo mótsins ásamt þeim Sergio Garcia og Luke Donald. Golf 29.10.2006 17:17
Henrik Stenson í forystu Sænski kylfingurinn Henrik Stenson hefur eins högg forskot þegar tveimur hringjum er lokið á Volvo Masters mótinu sem fram fer í Valderrama á Spáni. Stenson er á fjórum höggum undir pari eftir að hafa leikið á 68 höggum í dag og er höggi á undan Lee Westwood. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu á morgun og sunnudag. Golf 27.10.2006 18:13
Endaði í 60. sæti Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 60. sæti á áskorendamóti sem fram fór í Toulouse í Frakklandi um helgina. Birgir Leifur lék á fimm höggum yfir pari á lokahringnum í gær, á alls 77 höggum, eftir að hafa byrjað mjög illa og lauk keppni á alls sex höggum yfir pari. Golf 9.10.2006 08:45
Birgir Leifur áfram Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er að leika á tveimur höggum undir pari þegar tveimur hringjum er lokið á áskorendamótinu í Toulouse í Frakklandi. Birgir lék annan hringinn á pari í dag og komst því í gegn um niðurskurðinn á þessu mikilvæga móti. Golf 6.10.2006 21:09
Birgir á tveimur undir pari í Frakklandi Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG spilaði ágætlega á fyrsta keppnisdeginum á áskorendamóti í Frakklandi í dag og lauk keppni á 70 höggum, eða 2 höggum undir pari. Birgir þarf nauðsynlega að ná góðum árangri á mótinu til að styrkja stöðu sína á styrkleikalistanum, svo hann eigi möguleika á að komast á annað stig mótaraðarinnar. Golf 5.10.2006 18:45
Auðvelt hjá Woods Tiger Woods vann í dag auðveldan sigur á heimsmótinu í golfi sem fram fór á Englandi, en sigurinn var í raun aðeins formsatriði fyrir þennan ógnarsterka kylfing sem farið hefur á kostum á árinu. Golf 1.10.2006 18:20
Keppni frestað vegna veðurs Illa gengur að klára heimsmótið í golfi sem frem fer á The Grove vellinum á Englandi, en þar hefur keppni nú verið frestað vegna eldingahættu. Sýn er með beinar útsendingar frá mótinu, þar sem úrslitin eru að heita má ráðin því Tiger Woods hefur mjög öruggt sjö högga forskot á landa sinn Jim Furyk og Ástralann Adam Scott þegar lokahringurinn var tæplega hálfnaður. Golf 1.10.2006 13:27
Woods enn í forystu Tiger Woods hefur enn örugga forystu á heimsmótinu í golfi sem fram fer á Englandi, en Bandaríkjamaðurinn ótrúlegi hefur nú sex högga forystu á næsta mann fyrir lokadag mótsins á morgun. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadeginum eftir hádegi á morgun. Golf 30.9.2006 16:50
Woods í algjörum sérflokki Besti kylfingur heims, Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods, er í algjörum sérflokki á heimsmótinu í golfi sem fram fer á Englandi og hefur nú fimm högga forystu á þrjá næstu menn á mótinu eftir að leiknir hafa verið tveir hringir. Golf 29.9.2006 19:15
Frábær hringur hjá Heiðari Heiðar Davíð Bragason fór á kostum á öðrum hringnum á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi sem haldið er á Ítalíu. Heiðar spilaði á 7 höggum undir pari á lokadeginum í dag, samtals 65 höggum. Heiðar er á meðal efstu manna á mótinu og fær því tækifæri til að spila á öðru stigi úrtökumótsins. Golf 29.9.2006 16:45
Birgir Leifur úr leik í Kasakstan Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er úr leik á áskorendamótinu í golfi sem fram fer í Kasakstan eftir að hann lauk keppni á öðrum hringnum á samtals tveimur höggum yfir pari í dag. Birgir lék reyndar á pari í dag, en það nægði honum ekki til að komast í gegn um niðurskurðinn eftir slaka spilamennsku í gær. Golf 29.9.2006 16:00
Woods í stuði á heimsmótinu Bandaríski stjörnukylfingurinn Tiger Woods hristi heldur betur af sér vonbrigðin í Ryder keppninni í kvöld þegar hann lék fyrsta hringinn á heimsmótinu sem fram fer á Englandi á 63 höggum eða 8 undir pari. Woods hefur eins höggs forystu á Ian Poulter og Padraig Harrington. Woods hefur fjórum sinnum unnið sigur á mótinu. Golf 28.9.2006 22:49
Bandaríska liðið spilaði ömurlega Bandaríski kylfingurinn Jim Furyk hefur vísað þeim kenningum á bug að lið Bandaríkjanna hafi tapað í Ryder-bikarnum vegna þess að það skorti hungur. Furyk segir liðið einfaldlega hafa tapað fyrir því evrópska af því það hafi spilað ömurlegt golf alla keppnina. Golf 27.9.2006 20:00
Evrópuliðið vann þriðja árið í röð Lið Bandaríkjanna átti aldrei möguleika gegn því evrópska í Ryder-keppninni í golfi sem lauk á Írlandi í gær. Úrslitin urðu á sama veg og í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum, Evrópa hlaut átján og hálfan vinning en Bandaríkin níu og hálfan. Golf 25.9.2006 05:30
Evrópumenn sigra Ryder bikarinn Staðan í Ryder bikarnum er 15-8 fyrir Evrópu gegn Bandaríkjunum. Það þýðir að Evrópumenn hafa unnið. Paul Casey, sem hefur verið í fantaformi og farið holu í höggi í mótinu, lagði Jim Furyk að velli í dag. Það var hinsvegar Henrik Stenson sem setti niður gott pútt til að tryggja sigurinn. Golf 24.9.2006 14:41
Evrópa hefur góða forystu Lið Evrópu er að vinna Ryder -keppnina með tíu vinningum gegn sex hjá bandaríska liðinu fyrir lokadaginn á K-Klub sem er í dag. Illa gekk hjá bandaríska liðinu í gær og voru það þeir Tiger Woods og Jim Furyk sem lönduðu eina sigri þess í fjórmenningnum eftir hádegi þegar þeir unnu hina írsku Paidraig Harrington og Paul McGinley. Golf 24.9.2006 06:30
Tiger og Furyk rétta úr kútnum fyrir USA Tiger Woods og Jim Furyk sigruðu Padraig Harrington og Paul McGinley í síðasta leiknum á K-vellinum í dag. Með sigrinum löguðu þeir stöðu Bandaríkjamanna í baráttunni um Ryder bikarinn. Staðan fyrir lokadaginn á morgun er 10-6 fyrir Evrópumennina en þeir þurfa 14 sigra til að halda bikarnum. Draumahögg Paul Casey bar þó hæst á vellinum í dag. Golf 23.9.2006 18:00