Menning

Arnaldur á kunnuglegum slóðum

Arnaldur Indriðason er á toppi metsölulista Eymundsson með bók sína Harðskafa aðra vikuna í röð. Listinn sem birtur var í morgun hefur tekið nokkrum breytingum frá síðustu viku en í öðru sæti er Hnífur Abrahams eftir Óttar M. Norðfjörð. Sú bók hefur fengið góðar viðtökur og er henni líkt við Da Vinci lykilinn sem fór eins og eldur í sinu um heimsbyggðina fyrir nokkrum misserum. Í þriðja sæti sitja systkinin Þórarinn og Sigrún Eldjárn með bókina Gælur, fælur og þvælur.

Menning

Banksy staðinn að verki?

Vegfarandi nokkur kveðst hafa náð myndum með símanum sínum af listamanninum við iðju sína. Banksy hefur fram að þessu verið dularfull persóna í heimi myndlistarinnar og ávallt gætt vel að því að réttu nafni og öðrum upplýsingum um persónu hans verði ekki uppljóstrað.

Menning

Sæmdur riddarakrossi frönsku heiðursorðunnar

„Mér var tilkynnt þetta ekki alls fyrir löngu. Maður fær engar nákvæmar skýringar heldur bara tilkynningu,“ segir rithöfundurinn Sigurður Pálsson en Frakklandsforseti hefur ákveðið að sæma hann Chevalier de l’Ordre National du Mérite eða riddarakrossi frönsku heiðursorðunnar.

Menning

Koss í farbann

Ljósmynd af tveimur rússneskum lögreglumönnum sem kyssast í skógi vöxnu vetrarlandslagi hefur valdið þó nokkrum usla í rússnesku menningarlífi.

Menning

Myndlist í Regnboganum

Myndlistarhátíðin Sequences stendur yfir um þessar mundir, en undir formerkjum hennar fara fram listviðburðir víðs vegar um höfuðborgina. Hluti af dagskrá Sequences fer fram í Regnboganum, Hverfisgötu 54, í dag og á morgun. Í dag verður það listfélagsskapurinn Lortur sem stígur á svið með stuttmyndadagskrá og sérlegan leynigest.

Menning

Stefán Karl leikur Trölla eftir áramót á Broadway

"Við eigum enn eftir að ganga frá nokkrum lausum endum en ef þetta gengur allt saman upp þá verð ég Trölli á Broadway á næsta ári,“ upplýsir Stefán Karl Stefánsson en hann er nú kominn með annan fótinn á stóra sviðið í New York. Um er að ræða söngleik sem byggður er á bókinni Þegar Trölli stal jólunum eftir Dr. Seuss.

Menning

Leitar suðræns sjarmörs

Leikstjórinn Benedikt Erlingsson leitar nú logandi ljósi að suðrænu sjarmatrölli til að taka þátt í uppsetningu hans á Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Ekki spillir fyrir ef sjarmatröllið líkist Baltasar Kormáki.

Menning

Torfusamtökin þinga

Hundrað og eitt tækifæri er yfirskrift þings sem Torfusamtökin efna til á laugardag í gamla Iðnó. Samtökin hafa starfað af nokkrum krafti undir nýrri forystu eftir að hafa legið í dvala um árabil. Enda er nú tekist á um framtíð byggðar með ströndinni við Reykjavík og margt til umræðu í þeim áætlunum.

Menning

Ég vil snerta við fólki

Í dag verður sýningin Undrabörn/Extraordinary Child með myndum hins heimsþekkta bandaríska ljósmyndara Mary Ellen Mark opnuð í Þjóðminjasafninu. Ljósmyndirnar sýna veruleika fatlaðra barna á Íslandi í dag.

Menning

Krónprins íslenskra glæpasagna

Þýska bókaútgáfan List sem er hluti af Ullstein samsteypunni gefur út glæpasöguna Krosstré eftir Jón Hall Stefánsson á morgun. Kynningareintök voru send á þýska fjölmiðla og bókabúðir í síðustu viku og virðist mikill áhugi vera á bókinni. Biðpantanir frá bókabúðum nema nú þegar yfir 20.000 eintökum og er fyrsta prentun bókarinnar þrotin, en endurprentun hafin.

Menning

Vinjettusafnið stækkar enn

Rithöfundurinn Ármann Reynisson hefur sent frá sér sjöundu vinjettubók sína, sem heitir einfaldlega Vinjettur VII. Vinjettur Ármanns hafa áður verið gefnar út í Þýskalandi. Nú hefur Esperantófélagið á Íslandi fengið heimild höfundarins til að þýða þær yfir á esperantó og birta í tímariti sínu, sem er með áskrifendur í 40 löndum.

Menning

Málverkið í tísku

Nýlistasafnið, höfuðvígi tilrauna í íslenskri myndlist, opnar í dag faðm sinn fyrir málverkinu, hinu aldagamla formi myndrænnar tjáningar. Málverkið er viðfangsefni átta ungra listamanna frá Íslandi, Finnlandi, Sviss og Bandaríkjunum sem allir eiga það sameiginlegt að vinna dægurmenningu samtímans í þetta forna form.

Menning

Iðandi punktaform

Í dag er opnuð sýning á nýjum málverkum Aðalheiðar Valgeirsdóttur í gallery Turpentine Ingólfsstræti 5. Sýningin ber yfirskriftina „Vendipunktar“ sem vísar til viðfangsefnis verk­anna og vinnuaðferðar. Aðal­heiður notar punktatækni til að kanna hreyfingu í tíma og rúmi. Iðandi form og fletir svífa um á myndfletinum í leit að nýjum leiðum.

Menning

Atgervisblómi á Akureyri

Í kvöld verður Akureyrarvakan sett við hátíðlega athöfn í Lystigarðinum. Á laugardag og sunnudag verður íburðarmikil dagskrá í bænum og öllu til tjaldað: bæði utanhúss og innan verður margt skemmtilegt á seyði og nú verða Akureyringar að biðja um gott veður.

Menning

Sýning á verkum Nínu

Á laugardag verður opnuð sýning á verkum listakonunnar Nínu Sæmundson í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Jónína Sæmundsdóttir eða Nína eins og hún kallaði sig, var fædd í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð 1892. Nínu var aðeins 23 ára þegar hún fékk inni í Tekniske skole í Kaupmannahöfn 1915-16.

Menning

Bragi í Ameríku

Edda útgáfa hefur gert samning við forlagið Open Letter í Bandaríkjunum um útgáfu á Gæludýrunum eftir Braga Ólafsson. Kemur sagan út þar haustið 2008. Open Letter, sem er nýtt forlag í eigu Rochester- háskóla, gefur út þýddar samtímabókmenntir fyrir hinn enskumælandi heim.

Menning

Ungur ljósmyndari vekur athygli

Marino Thorlacius er ungur strákur sem var að gefa út sína fyrstu ljósmyndabók. Hann er sjálflærður í faginu og hefur einungis tekið myndir í þrjú ár. Athygli vekur að hinn virti ljósmyndari Ragnar Axelsson, eða RAX, kallar hann snilling á bókarkápunni.

Menning

Rithöfundar bíða átekta

Miklar sviptingar urðu á útgáfumarkaði hér á landi á dögunum, þegar Edda-útgáfa seldi bókaútgáfuhluta sinn til Máls og menningar. Margir ástsælustu rithöfundar þjóðarinnar hafa verið á mála hjá Eddu. Fréttablaðið forvitnaðist um hvernig viðskiptin horfi við þeim.

Menning

Carsten Jensen kominn

Í dag heldur áfram hin viðamikla og fjölbreytta dagskrá Reyfis með bókaeftirmiðdegi: verða upplestrar fyrirferðarmiklir í dagskránni í dag: Einar Már og og skáldin úr Nýhil verða á svæðinu en trompið er danski rithöfundurinn Carsten Jensen.

Menning

19 ára sýnir í Tukt

Viktoría Tsvetaeva er nítján ára listnemi við Lista- og iðnháskólann í Moskvu sem hefur opnað einkasýningu í Gallerí Tukt, Hinu Húsinu. Viktoría var yngsti nemandinn til að hefja nám við skólann árið 2004 en þá var hún aðeins sextán ára.

Menning

Ingmar Bergman jarðsettur

Sænski kvikmyndagerðamaðurinn Ingmar Bergman var jarðsettur í dag á eyjunni Faro í Eystrasalti þar sem hann bjó. Athöfnin var látlaus og fámenn með einungis nánustu ættingjum og vinum viðstöddum. Bergmann lést í svefni á heimili sínu þann 30 júlí, 89 ára að aldri.

Menning

Andri Snær tekur púlsinn

Andri Snær Magnason rithöfundur leiðir gesti í kvöld um sali Listasafns Íslands en þar er nú uppi sýningin Ó-náttúra. Má búast við að skáldið fari víða í hughrifum um hvað fyrir augu ber.

Menning

Mats Wibe Lund fagnar löngum ferli

Í tilefni af sjötugsafmæli sínu fyrr á þessu ári opnar Mats Wibe Lund ljósmyndari sýningu völdum myndum úr sínu gríðarlega safni í galleríi Orkuveitu Reykjavíkur 100º að Bæjarhálsi 1 á morgun.

Menning

Íslensk hönnun í brennidepli

Tímana áður en tónleikadagskráin hefst á Klambratúninu gamla, sem er eftir sumartónleika Sigurrósar orðinn einn helsti útitónleikastaður borgarinnar, ætla menn að tala saman á Kjarvalsstöðum.

Menning

Fjölbreytt hönnun í Forynju

Forynja nefnist ný búð sem Sara María Eyþórsdóttir opnar í dag en Sara er oftast kennd við búðina Nakta apann sem hún rekur einnig. Í Forynju verður margt spennandi í boði og þar á meðal heimilisvörur eins og koddar og rúmföt sem hönnuð eru af Söru og hennar aðstoðarteymi.

Menning

Banksy og Warhol í eina sæng

Í menningarmiðstöðinni The Hospital Gallery er nú att saman New York-listamanninum Andy Warhol og breska götulistamanninum Banksy. Þó þessir tveir listamenn eigi alls ólíkan bakgrunn er list þeirra ekki svo ósvipuð og sést það á sýningunni þar sem verk þeirra eru sýnd saman.

Menning