Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú vinnur að því að hrinda í framkvæmd áætlun og það lítur út fyrir að það muni ganga vel. Eitthvað gerist á heimilinu sem kemur þægilega á óvart.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Eitthvað sem þú vinnur að um þessar mundir gæti valdið þér hugarangri. Taktu þér góðan tíma til að íhuga málið. Þú færð fréttir sem gleðja þig mjög.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Sjaldan veldur einn þá tveir deila. Það eru mistök að kenna einhverjum einum alfarið um og þú ættir að líta í eigin barm.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú þarft að fara varlega í fjármálum og forðast alla óhóflega eyðslu. Ef þú ert sniðugur getur þú loksins látið gamlan draum rætast.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Forðastu að vera uppstökkur því að það mun hafa neikvæð áhrif á fólkið í kringum þig. Gefðu þér tíma til að slappa aðeins af.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þér finnst ekki rétti tíminn núna til að taka erfiðar ákvarðanir. Ekki gera neitt gegn betri vitund. Líklegt er að ákveðnar upplýsingar vanti.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Viðskipti og öll samningsgerð virðast leika í höndunum á þér. Þú þarft þó að lesa allt mjög vandlega yfir áður en þú skrifar undir.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú ættir að sýna aðgát í samskiptum þínum við aðra. Það er mikil viðkvæmni og tilfinningasemi í kringum þig. Kvöldið verður skemmtilegt í góðra vina hópi.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Vertu bjartsýnn á framtíðina þó að þú fáir stundum gagnrýni á það sem þú ert að gera. Þú mátt ekki vera svona hörundssár.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Gefðu þér nægan tíma til að sinna mikilvægu verkefni sem þér verður falið í dag. Það veltur mikið á því að vel takist til um úrlausn þess.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Dagurinn virðist líða hægt og þú átt erfitt með að einbeita þér að vinnu þinni fyrri hluta dagsins. Kvöldið lofar góðu varðandi félagslífið.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Vinur þinn leitar ráðleggingar hjá þér. Mikilvægt er að þú farir varlega þar sem þú veist ekki alla málavexti. Hafðu það rólegt í kvöld.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Einhverjar hindranir, sem verið hafa í vegi þínum varðandi framkvæmdir, virðast nú horfnar. Ný og betri þróun í persónulegum málum þínum er hafin.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Það er óróleiki í kringum þig og þú verður líklega í þeirri aðstöðu að þurfa að sætta vissa aðila í smávægilegu deilumáli.

Menning