Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Reyndu að gera þér grein fyrir því hvað þú vilt gera í lífinu. Það er tími til kominn að þú setjist niður og veltir fyrir þér málunum.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Taktu ekki meira að þér en þú ræður við. Þú vilt vinna verk þín vel og er því afar mikilvægt að þú náir góðri einbeitingu.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú ert vinnusamur í dag og kemur frá þér verkefnum sem þú hefur verið að trassa lengi. Einbeittu þér að skipulagningu næstu daga.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Einhver hefur mikið á sinni könnu og þú gerir honum mikinn greiða ef þú hjálpar honum. Þín gæti beðið gott tækifæri ef þú gefur þér tíma til að hlusta.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Eitthvað sem þér berst til eyrna veldur þér miklum heilabrotum. Þú ert tortrygginn gagnvart kunningja þínum en ert ekki viss í þinni sök.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Ekki er ólíklegt að þú lendir í deilum við nágranna þinn þar sem spenna hefur ríkt á milli ykkar um nokkurt skeið. Með vilja og umbyrðarlyndi jafnar þessi misklíð sig þó fljótt.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Ef þér leiðist er ekki um annað að ræða en finna sér eitthvað nýtt að gera. Ekki er ólíklegt að vinur þinn leiti til þín vegna fjárhagsörðugleika.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þú verður að sýna sjálfstæði og ákveðni í vinnunni þinni. Ekki taka gagnrýni of nærri þér en hlustaðu á hana og aðgættu það sem betur má fara.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Nú er einkar hagstætt að gera viðskiptasamninga og þú ættir að nota þér það ef þú ert í þeim hugleiðingum. Ef rétt er á málum haldið fer fjárhagur þinn batnandi.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þú ert dálítið utan við þig í dag og tekur ekki vel eftir því sem fer fram í kringum þig. Láttu krefjandi verkefni bíða þar til þú ert betur upplagður.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú kynnist nýjum hugmyndum og það ýtir þér kannski út í framkvæmdir. Þú ert fullur af orku í dag og ættir að geta afkastað miklu.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Það væri best að tala hreint út um mál sem er farið að verða talsvert þrúgandi í samskiptum vina. Þér kemur á óvart hve lausnin reynist vera einföld.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Félagslífið er blómlegt hjá þér og þú þarft víða að koma við. Það er ekki laust við að þér finnist þetta jafnvel einum of mikið af því góða.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú ert eitthvað niðurdreginn. Það er ekki víst að það sem er að angra þig sé svo stórvægilegt að ástæða sé til að vera dapur þess vegna.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú verður fyrir óvenjulega miklum óþægindum í dag. Það lendir á þér að gera margt sem þér finnst að aðrir ættu frekar að gera en þú.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Gættu þess að ungviðið fái næga athygli frá þér. Það lítur út fyrir að einhver eða einhverjir innan fjölskyldunnar séu heldur afskiptir þessa dagana.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Fjölskyldan stendur óvenjulega þétt saman og sýnir meiri félagslegan þroska en þér finnst hún hafa gert undanfarið. Kvöldið verður rólegt.

Menning