Viðskipti erlent
262 263 264 265 266 267 268 269 270 … 334 ›
Aalborg Portland í Danmörku fékk ólöglegan ríkisstyrk Framkvæmdastjórn ESB metur það svo að tveggja ára gömul löggjöf sé í raun ólöglegur ríkisstyrkur til sementframleiðandans Aalborg Portland í Danmörku. Aalborg Portland muni hagnast um 100 milljónir danskra kr. eða tæpa 2,2 milljarða kr. þar sem löggjöfin losaði fyrirtækið undan greiðslum á mengunargjöldum. Viðskipti erlent 26.5.2010 08:42
Seðlabankar verða að vera sjálfstæðir Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir að seðlabankar hvarvetna í heiminum verði að geta tekið ákvarðanir um stýrivexti án afskipta stjórnmálamanna. Hann segir að ef sjálfstæði seðlabanka sé skert leiði það til efnahagslegs óstöðugleika. Viðskipti erlent 26.5.2010 08:15
Búist við að nýr iPhone verði kynntur í júní Búist er við því að Steve Jobs, forstjóri Apple fyrirtækisins, muni kynna fjórðu kynslóð af iPhone símanum á ráðstefnu sem Apple stendur fyrir í júní. Viðskipti erlent 26.5.2010 07:57
Blóðbað á Wall Street Hlutabréf hafa lækkað mikið á mörkuðunum á Wall Street frá því þeir opnuðu nú eftir hádegið. Dow Jones vísitalan hefur lækkað um 3% og Nasdag er 3,2% í mínus í fyrstu viðskiptum dagsins. Viðskipti erlent 25.5.2010 14:03
Straumur selur 10% í viðbót í West Ham Straumur hefur selt þeim félögum David Sullivan og David Gold 10% hlut í enska úrvaldsdeildarliðinu West Ham og eiga þeir því nú 60% í félaginu. Sullivan og Gold borguðu 8 milljónir punda eða rúman 1,5 milljarð kr. fyrir 10% að því er segir í frétt í Guardian um málið. Viðskipti erlent 25.5.2010 13:21
Lego veðjar á Prince of Persia í Bandaríkjunum Lego í Danmörku, stærsti leikfangaframleiðandi Evrópu, ætlar að veðja á kvikmyndina Prince of Persia til að tvöfalda sölu sína á Bandaríkjamarkaði á næstu fimm árum. Ætlunin er að setja Legokubbasett á markaðinn í Bandaríkjunum sem yrði byggt á myndinni. Viðskipti erlent 25.5.2010 09:36
Norðursjávarolían undir 70 dollara á tunnuna Verð á Norðursjávarolíunni fór undir 70 dollara á tunnuna í morgun en það hefur ekki gerst síðan í febrúar s.l. Verðið stendur nú í 69,7 dollurum sem er lækkun um 2,1%. Bandaríska WTI olían selst nú á 68,6 dollara tunnan en verið á henni fór undir 70 dollara fyrir helgina. Viðskipti erlent 25.5.2010 08:32
Verðfall á öllum mörkuðum Verð hafa fallið á öllum helstu hlutabréfa í heiminum frá því í gærkvöldi. Í morgun opnuðu allar helstu kauphallir Evrópu í rauðu eftir svipaða þróun í Asíu í nótt. Viðskipti erlent 25.5.2010 08:08
AGS hefur þungar áhyggjur af Spáni Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lýst yfir miklum áhyggjum yfir veiku hagkerfi Spánar og segir ríkið langt því frá að ná nauðsynlegum umbótum til þess að rétta af efnahagskerfið sem hefur mátt þola þung högg undanfarið. Viðskipti erlent 24.5.2010 21:00
Nígeríumaður vill hlut í Arsenal Nígerískur auðjöfur að nafni Aliko Dangote á í viðræðum um kaup á 16% hlut í enska knattspyrnuliðinu Arsenal. Hluturinn sem er til sölu er í eigu Lafði Ninu Bracewell-Smith, en hún er fjórði stærsti hluthafinn í Viðskipti erlent 23.5.2010 08:00
Heimsins dýrasta frímerki selt Heimsins dýrasta frímerki var selt á uppboði í Genf í gær, fullyrðir Ritzau fréttastofan. Frímerkið er svokallaður „Gulur þrískildingur“ og er hluti af frímerkjaröð sem byrjað var að gefa út í Svíþjóð árið 1855. Gulur þrískildingur var prentaður í grænu. Það sem gerir eintakið sem seldist um helgina svo sérstakt er að það var óvart prentað í gulum lit. Viðskipti erlent 23.5.2010 07:00
Neðri deildin samþykkti björgunarpakkann Neðri deild þýska þingsins samþykkti í gær hlut Þýskalands í eitt þúsund milljarða evra björgunarpakka í Evrópu. Angela Merkel, kanslari, hafði varað við því að evran væru í hættu. „Ef evran bregst þá bregst Evrópa," sagði Merkel fyrr í vikunni þegar hún hvatti neðri deild þingsins til að samþykkja hlut Þýskalands. 319 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu en 73 á móti. Viðskipti erlent 23.5.2010 06:30
Betur horfir í efnahagslífinu Bankastjórn japanska seðlabankans ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,1 prósenti. Almennt var reiknað með þessari ákvörðun bankastjórnarinnar í skugga hræringa á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 22.5.2010 08:15
Hertar reglur um bankana Öldungadeild Bandaríkjanna samþykkti á fimmtudag nýjar og strangar reglur um fjármálastarfsemi, sem eiga að koma í veg fyrir nýtt hrun. Viðskipti erlent 22.5.2010 01:00
Tíundi hver banki vestan hafs í vandræðum Tíundi hver banki í Bandaríkjum er í fjárhagsvandræðum. Þetta sýna tölur úr uppgjörum í bandaríska bankakerfinu fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs. Viðskipti erlent 21.5.2010 14:05
Böndum komið á fjármálakerfi Bandaríkjanna Bandaríska öldungadeildin hefur samþykkt frumvarp sem felur í sér mestu umbætur á fjármálareglum sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum frá fjórða áratugi síðustu aldar. Viðskipti erlent 21.5.2010 08:42
British Airways tapa sem aldrei fyrr Breski flugrisinn British Airways skírði frá mesta tapi í sögu félagsins í dag. Félagið tapaði 531 milljónum sterlingspunda eða rétt tæplega hundrað milljörðum íslenskra króna síðasta reikningsárið sem laik í mars. Viðskipti erlent 21.5.2010 08:39
Veislan á Wall Street stöðvuð Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi nýtt frumvarp sem setur verulegar skorður á fjármálastarfsemi banka, fyrirtækja og félaga í Bandaríkjunum. Samþykktin þykir töluverður sigur fyrir Barack Obama bandaríkjaforseta enda málið eitt af stefnumálum hans í síðustu kosningum. Viðskipti erlent 21.5.2010 08:33
Álverðið lækkar mikið, komið undir 2.000 dollara á tonnið Heimsmarkaðsverð á áli hefur hríðfallið undanfarin mánuð og er nú komið undir 2.000 dollara á tonnið. Verðið m.v. þriggja mánaða framvirka saminga stendur nú í 1,997 dollurum á tonnið. Hefur verðið ekki verið lægra í ár síðan í febrúar. Viðskipti erlent 20.5.2010 10:47
Angela Merkel veldur dýfu á evrópskum mörkuðum Sú ákvörðun stjórnar Angelu Merkel kanslara Þýskalands að banna ákveðnar tegundir af skortstöðum á þýska markaðinum hefur valdið því að hlutabréfamarkaðir um alla Evrópu byrja daginn í frjálsu falli. Viðskipti erlent 19.5.2010 09:25
Dönsk flugfélög fá ríkisábyrgð vegna öskunnar Dönsk flugfélög og ferðaskrifstofur munu fá ríkisábyrgð á þeim lánum sem þau þurfa að taka eftir skaðann sem askan frá gosinu í Eyjafjallajökli hefur valdið þeim. Viðskipti erlent 18.5.2010 14:44
ESB þrengir reglur um fjárfestingar- og vogunarsjóði Löndin innan ESB eru sammála um þörfina á því að herða og þrengja reglurnar um starfsemi fjárfestingar- og vogunarsjóða innan landamæra sambandsins. Fjármálaráðherrar ESB hafa samþykkt að unnið skuli að nýjum reglum um þessa sjóði og að þær eigi að lögfesta árið 2012. Viðskipti erlent 18.5.2010 13:01
Verkfalli lokið hjá Carlsberg, Danir fá ölið sitt Verkfalli 1.100 starfsmanna Carlsberg brugghússins í Danmörku lauk í morgun. Starfsmennirnir hófu vinnu um hádegisbilið og Danir fá nú að nýju Carlsberg og Tuborg ölið sitt. Viðskipti erlent 18.5.2010 11:15
Svissneskur franki ekki lengur flóttaleið í óvissuástandi Sókn alþjóðlegra fjárfesta í gjaldmiðlana Kanadadollar og jen er hefðbundin flóttaleið í óvissuástandi, en svissnenskur franki er vanalega einnig í þeim hópi. Nú hafa fjárfestar forðast hann vegna tengsla við Evrópu. Viðskipti erlent 18.5.2010 08:29
Prófessor líkir Grikklandi við Lehman Efnahagsvandi Grikkja, Portúgals og Spánar mun ganga af evrunni dauðri. Þetta segir breski hagsöguprófessorinn Niall Ferguson í grein í nýjasta hefti vikuritsins Newsweek. Viðskipti erlent 18.5.2010 00:01
Miðlarar veðja á að evran veikist áfram Gengi evrunnar gagnvart dollaranum hefur ekki verið veikara í fjögur ár. Gjaldeyrismiðlarar veðja á að gengið muni veikjast enn frekar en fram kemur á Bloomberg fréttaveitunni að verðið fyrir að tryggja sig gegn frekari veikingu evrunnar hefur ekki verið hærra í sjö ár. Viðskipti erlent 17.5.2010 10:01
Verkfall áfram hjá Carlsberg, bjórþurrkur hjá Dönum Meiri harka er nú hlaupin í verkfallsaðgerðir starfsmanna brugghússins Carlsberg í Danmörku en starfsmennirnir samþykktu að halda verkfalli sínu áfram á stórum fundi í morgun. Danskar verslanir og krár eru að verða uppiskroppa með Carlsberg og Tuborg bjóra. Viðskipti erlent 17.5.2010 09:17
Olíuverð lækkar hratt, tunnan fór undir 70 dollara Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka á töluverðum hraða og fór í morgun undir 70 dollara á tunnuna. Verðið stendur nú í rétt rúmum 70 dollurum. Það er einkum ótryggur efnahagur í Evrópu sem veldur þessum lækkunum. Viðskipti erlent 17.5.2010 08:20
Schwarzenegger boðar niðurskurð Arnold Schwarzenegger, fylkisstjóri í Kaliforníu, boðar stórfelldan niðurskurð við gerð fjárlaga fylkisins. Viðskipti erlent 16.5.2010 09:37
Breskir bankar banna notkun 500 evra seðils Breskir bankar og gjaldmiðlasalar hafa hætt að nota, eða skipta, 500 evra seðlum. Ástæðan er sú að lögregluyfirvöld hafa upplýst að 9 og hverjum 10 slíkum seðlum sem eru í umferð eru notaðir af glæpamönnum. Viðskipti erlent 15.5.2010 09:03