Fjöldi athyglisverða fyrirlestra 12. júlí 2004 00:01
Dagana 16. og 17. september næstkomandi verður haldin ráðstefna um tóbaksvarnir á Hótel Örk í Hveragerði, LOFT 2004. Skráning stendur nú yfir á heimasíðu LOFTS, www.hnlfi.is/loft2004, en þar er einnig að finna dagskrá og aðrar upplýsingar um ráðstefnuna. Að sögn Höllu Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðings er ráðstefnan í umsjón Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði og opin heilbrigðisstarfsfólki og öðrum áhugamönnum um tóbaksvarnir. "Fyrsta LOFT-ráðstefnan var haldin á Egilsstöðum árið 1998 að frumkvæði heilsugæslunnar þar og svo var önnur ráðstefnan haldin á Skútustöðum í Mývatnssveit árið 2003. Báðar þessar ráðstefnur tókust svo vel að ákveðið var að gera LOFT að föstum lið í tóbaksvarnarstarfi hér á landi." segir Halla. "Á ráðstefnunni í ár eru margir áhugaverðir fyrirlesarar, jafnt íslenskir sem erlendir. Við fáum til dæmis fyrirlestur starfsmanns í norska heilbrigðisráðuneytinu um hvernig algjört reykingabann var undirbúið í Noregi og hvernig því var fylgt eftir, sem er mjög áhugavert. Þá verður þarna fyrirlestur um munntóbaksnotkun og meðferðarúrræði fyrir þá sem vilja hætta að reykja, svo fátt eitt sé nefnt.". Ráðstefnugjald er 16.000 kr. en hækkar í 19.000 kr. ef skráning fer fram eftir 1. ágúst
Heilsa Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirmennilegir fjórmenningar Gagnrýni Calvin Harris orðinn faðir Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira