Háttsettur Íraki myrtur 26. júlí 2004 00:01
Þrír létust í sjálfsmorðsárásum í borginni Mósúl í Írak í morgun og háttsettur embættismaður var myrtur á heimili sínu í Bagdad. Árásum í Írak fer fjölgandi. Þrír létust og þrír særðust í sjálfsmorðssprengingu í Mósúl í morgun. Jeppi fullur af sprengjuefnum sprakk fyrir utan höfuðstöðvar Bandaríkjahers í borginni með þeim afleiðingum að árásarmaðurinn, kona og barn létust. Að minnsta kosti sjötíu hafa látist í árásum í Mósul síðustu mánuði en ekkert lát er á þeim eftir að Írakar tóku við stjórn í landinu. Háttsetur maður úr innanríkisráðuneyti Íraks var myrtur í Bagdad í morgun. Mussab al-Awadi var að koma út úr húsi sínu ásamt tveimur lífvörðum þegar byssumenn hófu skothríð og létust mennirnir samstundis. Ráðherrar og embættismenn í Írak óttast flestir um líf sitt, enda er það yfirlýst markmið vígamanna að gera árásir á alla þá sem þeir telja að séu að vinna með Bandaríkjastjórn. Hópur íslamskra skæruliða í Írak, sem heldur sjö erlendum borguurum í gíslingu, hefur framlengt frest sem þeir höfðu gefið samningamönnum. Lífi gíslanna, sem allir vinna fyrir kúveiskt fyrirtæki, verður því þyrmt um sinn. Tveir Pakistanar sitja hins vegar í haldi mannræningja. Hópurinn kallar sig „Her íslams í Írak“ og hefur hótað að drepa fangana vegna þess að Pakistan hefur hugleitt að senda hermenn til Íraks.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira