Erlent

Landtökumenn börðu og rændu ljós­myndara Washington Post

Samúel Karl Ólason skrifar
Einn palestínskur maður var skotinn af hermönnum. Herinn segir hann hafa hlaupið í átt að þeim með beittan hlut í hendinni.
Einn palestínskur maður var skotinn af hermönnum. Herinn segir hann hafa hlaupið í átt að þeim með beittan hlut í hendinni. AP/Leo Correa

Tugir ísraelskra landtökumanna brenndu ólífutré og réðust á Palestínumenn sem voru að safna ólífum. Þar að auki réðst hópur manna á bandarískan ljósmyndara á vegum Washington Post en þeir börðu hana og rændu. Mennirnir réðust einnig á palestínska samstarfsmenn hennar.

Árásin átti sér stað nærri þorpinu Abu Falah á Vesturbakkanum. Íbúar þorpsins voru að safna uppskerunni þegar grímuklæddir landtökumenn, um áttatíu talsins, komu á vettvang og grýttu Palestínumennina.

Í frétt Reuters segir að sumir þeirra hafi notað slöngvur til að grýta Palestínumennina. Einhverjir þeirra síðarnefndu köstuðu grjóti á móti og notuðu líka slöngvur en þá komu ísraelskir hermenn á jeppum á svæðið og skutu táragasi að Palestínumönnunum.

Landtökumennirnir héldu áfram að kasta grjóti og brenna ólífutré, eftir að hermennina bar að garði. Ljósmyndari Reuters segist hafa séð að minnsta kosti einn landtökumann skjóta úr byssu.

Á meðan á þessu gekk réðst hópur manna að bandaríska ljósmyndaranum Heidi Levine, sem vinnur fyrir Washington Post.

Myndbönd af árásinni hafa verið í dreifingu á netinu í morgun.

Í samtali við Reuters segir Levine að mennirnir hafi hrint henni í jörðina og sparkað ítrekað í hana. Hún segist þakklát fyrir að hafa verið með hjálm og í hlífðarvesti, því annars hefði hún mögulega látið lífið í árásinni. Þar hafi ekki hætt að sparka í hana fyrr en palestínskir samstarfsmenn hennar komu henni til aðstoðar og fluttu á sjúkrahús.

Auk hennar særðist einn annar en hann var skotinn af ísraelskum hermönnum.

Palestínskur maður notar slöngvu gegn landtökumönnum.AP/Leo Correa

Aukið ofbeldi landtökumanna

Ofbeldi ísraelskra landtökumanna í garð Palestínumanna á Vesturbakkanum hefur aukist til muna að undanförnu. Ráðist hefur verið á marga Palestínumenn við uppskeru og hefur ísraelski herinn gert lítið ef eitthvað til að stöðva landtökumennina.

Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú hefur fjölgað landtökubyggðum á svæðinu til muna. Þessar byggðir eru ólöglegar en á Vesturbakkanum búa nú um fimm hundruð þúsund landtökumenn og þrjár milljónir Palestínumanna.

Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, lýsti því yfir í síðasta mánuði að hann vildi að Ísraelar færu í stríð á Vesturbakkanum, leystu upp heimastjórnina og beittu þar sambærilegum aðferðum og á Gasaströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×