Skýrslunni ekki beint gegn Baugi 1. september 2004 00:01
Skýrsla nefndar um hringamyndun er hófstillt og greinilega ekki beint gegn Baugi sem þarf líklega ekki að breyta rekstri sínum, segir stjórnarformaður fyrirtækisins. Viðbrögð stjórnarandstöðunnar við skýrslunni eru jákvæð. Samkeppnisstofnun verður skipt upp, stjórnarformanni hlutafélags verður bannað að starfa jafnframt að framkvæmdastjórn sama fyrirtækis og réttur minnihluta verður efldur samkvæmt tillögum sem viðskiptaráðherra hyggst setja í lagafrumvörp, í því skyni að auka traust á íslensku viðskiptalífi. Þetta er byggt á niðurstöðum nefndar á vegum ríkisstjórnarinnar sem hefur gert tillögur um hvernig bregðast mætti við aukinni samþjöppun í íslensku viðskiptalífi. Nefndin telur ekki ástæðu til þess að setja sérstök lög um hringamyndun. Helsta tillagan lýtur að því að skerpa samkeppniseftirlit og lagt er til að samkeppnisyfirvöldum verði veitt heimild til að krefjast þess að fyrirtæki, sem brotið hafa gegn ákvæðum samkeppnislaga, breyti skipulagi sínu. Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, segir helstu niðurstöður nefndarinnar skynsamlegar. Umræðan sé þörf um að breyta skipulagi samkeppnisyfirvalda en menn verði hins vegar að fara varlega í að veita samkeppnisyfirvöldum frekari völd varðandi skipulag fyrirtækja. Hreinn segir þetta verða að vera í samræmi við önnur lönd sem Ísland sé í samstarfi við samkvæmt EES-samningnum. Hreinn segist ekki geta séð að verði lög byggð á tillögum nefndarinnar þurfi að breyta rekstri Baugs, en nú fari umræða um skýrsluna í hönd og muni Baugur fylgjast náið með framvindunni. Honum sýnist menn vilja vera frekar hófstilltir í þessum málum og því sé ekki ástæða til að óttast að spjótum verði beint að fyrirtækjum tengdum Baugi. Menn eru farnir að átta sig á því að ástandið hér er ekki óeðlilegt að sögn Hreins. Viðbrögð stjórnarandstöðunnar hafa verið tiltölulega jákvæð. Samfylkingin hefur ekki talið þörf á lögum gegn hringamyndun á Íslandi og telur núverandi lög nægjanlega góð. Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, er hins vegar ekki sammála því, þó hann telji ýmislegt gott í skýrslunni, enda hefur hans flokkur lagt fram tillögur um takmarkanir á eignarhaldi á fjármálafyrirtækjum. Hann segir það koma sér á óvart hve alhæfingarsöm nefndin sé þegar komi að stærri málum, t.d. varðandi löggjöf gegn hringamyndun. Ögmundur segist sakna þeirrar ráðgjafar sem hann hefði helst viljað sjá til að koma í veg fyrir samþjöppun og hringamyndun á Íslandi. Það er, að ríkisstjórnin láti af þeim áætlunum að færa stórum aðilum eignir þjóðarinnar á silfurfati. Þar kveðst Ögmundur að sjálfsögðu eiga við einkavæðinguna. Hægt er að hlusta á viðtöl við Hrein Loftsson og Ögmund Jónasson úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Sjá meira