Fallegasta breytingin 19. september 2004 00:01
Ritstjórn Kelley Blue Book, handbókar fyrir bílakaupendur í Ameríku, hefur kosið hinn nýja Ford Mustang "fallegasta nýja útlitið" af árgerð 2005. Skoðaðir voru bílar sem voru endurhannaðir á milli árgerða og Mustanginn fékk bestu einkunn hjá þessari virtu handbók. Þetta er annað árið í röð sem Ford fer með sigur af hólmi því á síðasta ári var það F-150 pallbíllinn sem þótti hafa fengið bestu fegrunaraðgerðina. "Eitt af grundvallaratriðunum við hönnun nýja útlitsins var að halda í þau atriði sem hafa gert Mustanginn að þeim bíl sem hann er, en kynna samt til leiks bíl sem er ólíkur fyrri bílum af sömu tegund," segir Phil Martens, hönnunarstjóri Ford í Ameríku. "Þegar góð vara er endurhönnuð, eins og við gerðum með Mustanginn, er lykilatriðið að breyta ekki því sem gerir hana að góðri vöru." Hið nýja útlit bílsins fylgir tískustraumum sportbíla dagsins í dag: Harðir aðdáendur gamla Mustangs geta þó huggað sig við það að ættarsvipurinn er sterkur og á margan hátt mun líkari eldri bílunum en síðasta yfirbygging.
Bílar Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira