Innlent

Fjórir stútar teknir í nótt

Fjórir ölvaðir ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt og einn fyrir að aka réttindalaus eftir að hafa verið sviptur þeim. Þá voru þrír sektaðir fyrir að vera með útrunnin ökuskírteini og nokkrir fyrir að hafa gleymt þeim heima. Þetta var uppskera átaks lögreglunnar gegn ölvunarakstri og voru um það bil hundrað og fimmtíu ökumenn stöðvaðir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×