Grunur um manndráp 1. nóvember 2004 00:01
Tæplega þrítugur maður er í haldi lögreglunnar í Kópavogi, grunaður um að hafa ráðið tuttugu og fimm ára eiginkonu sinni bana á heimili þeirra í fjölbýlishúsi í Hamraborg í nótt. Það var klukkan rúmlega þrjú í nótt sem lögreglu barst vitneskja um að ekki væri allt með felldu á heimili þeirra. Það var með þeim hætti að maðurinn hringdi í vinafólk og lét vita en það hringdi í lögregluna. Þegar lögregla kom að var konan látin og voru áverkar á líkinu sem bentu til þess að átök hefðu átt sér stað og leitt til dauða hennar. Eiginmaðurinn var handtekinn á vettvangi og hefur hann viðurkennt að hafa átt þátt í láti konunnar. Rannsókn málsins er á frumstigi og því óljóst um málsatvik en yfirheyrslur hafa staðið í allan morgun. Þá hafa tæknimenn verið á vettvangi. Næstu nágrannar í fjölbýlishúsinu segjast ekki hafa orðið varir við neitt óvenjulegt í nótt sem bendi til langvarandi átaka. Hin látna lætur eftir sig tvö ung börn.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira