Lyfja eignast 66% í Litís 3. nóvember 2004 00:01
Lyfja hf. hefur eignast 66% hlut í Litís hf. en það félag rekur tvær keðjur apóteka í Litháen undir merkjum Farma. Með kaupunum er stigið fyrsta skrefið í útrás Lyfju, að því er segir í tilkynningu frá félaginu, en markmiðið er að víkka út tekjugrunn félagsins með því að sækja á erlenda markaði. Þá sjá stjórnendur Lyfju einnig möguleika til framtíðar að ná hagstæðari innkaupum á lyfjum og öðrum vöruflokkum sem Lyfja selur og stuðla þannig að lægra lyfjaverði hér á landi. Seljandi Litís er Líf hf. en Líf var einn af þremur stofnendum Litís árið 2000 ásamt þáverandi eigendum Lyfju. Annar þeirra, Ingi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lyfju, á ennþá 34% hlut í Litís. Félagið rekur í dag tuttugu apótek í Vilnius og Kaunas, tveimur stærstu borgum Litháen, og viðræður eru hafnar um kaup á fleiri. Í Litháen hefur verið mikill hagvöxtur síðustu ár og er búist við áframhaldandi miklum hagvexti í kjölfar inngöngu landsins í Evrópusambandið þann 1. maí síðastliðinn. Sigurður Ívarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Litís en hann starfaði að uppbyggingu félagsins á fyrstu árum þess. Stjórnarformaður Litís er Ingi Guðjónsson.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira