„Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Agnar Már Másson skrifar 1. október 2026 21:31 Eftir sautján ára starf sagði Hörður Arnarson í dag upp störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, orkufyrirtækis ríkisins. Samsett Mynd Skyndileg starfslok Harðar Arnarsonar sem forstjóra Landsvirkjunar koma í kjölfar ágreinings milli hans og stjórnar Landsvirkjunar. Stjórnarformaðurinn segir forstjórann og stjórnina ekki ávallt hafa verið sammála um allt en hún þakkar Herði fyrir glæsilegan sautján ára feril hjá félaginu.
Þegar Hörður tilkynnti starfsfólki Landsvirkjunar um starfslok sín í dag sagði hann samkvæmt heimildum Vísis að ákvörðunin hefði nokkuð með ágreining milli hans og stjórnar Landsvirkjunar að gera en hann fór þó ekki nánar út í það. Þó nefndi hann einnig að hann væri búinn að starfa sem forstjóri í 27 ár, þar af sautján hjá Landsvirkjun, og hefði lofað eiginkonunni að verja meiri tíma með fjölskyldunni. Forstjórinn fráfarandi veitti ekki viðtöl eftir fundinn. Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, segir í samtali við Vísi að Hörður og stjórnin hafi ekki alltaf verið sammála um allt. „Það er ekki frá miklu að segja. Eðlilega er fólk ekki alltaf sammála um allt. Hörður ákvað að taka þetta skref örlítið fyrr en ella,“ segir Brynja við Vísi. Hún segir að stjórnin taki ákvörðun Harðar í sátt og lýsi þakklæti fyrir hans „17 ára glæsilega feril“ hjá Landsvirkjun og það sem hann hafi gert fyrir félagið. Hörður tók við stjórn fyrirtækisins árið 2009. Jóhann Páll Jóhannsson orkumálaráðherra þakkar Herði fyrir störfin í skoðanagrein á Vísi. Að svo stöddu er Hörður farinn í vikufrí en hann á síðan eftir að starfa fram í lok október til þess að ganga frá lausum endum, að sögn Brynju. Hinn 1. nóvember tekur Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, tímabundið við starfi forstjóra. Brynja segir að Kristín sé „gíðarlega öflugur stjórnandi“ og að Landsvirkjun verði í góðum höndum á meðan Herði er fundinn arftaki. En var eitthvað ósætti milli Harðar og stjórnarinnar? „Eins og hann sagði á starfsmannafundinum þá voru hlutir sem við vorum ekki sammála um en það er bara eins og gengur og gerist,“ svarar stjórnarformaðurinn.
Landsvirkjun Orkumál Rekstur hins opinbera Mest lesið Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Sjá meira