Leikskólakennarar skrifuðu undir 23. desember 2004 00:01
Samningamenn leikskólakennara og sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöldi hjá Ríkissáttasemjara en leikskólakennarar voru búnir að vera með lausa samninga síðan í sumar. Samningurinn gildir til 30. september árið 2006, eða nokkuð skemur en samningar sem gerðir hafa verið að undanförnu. Mestar hækkanir verða hjá yngstu hópunum og deildarstjórum sem hækka um tuttugu prósent á samningstímanum. Þá hefur samningurinn verið einfaldaður þannig að föst yfirvinna fellur inn í dagvinnulaun. Samningurinn kostar sveitarfélögin rúman milljarð sem jafngildir þrettán prósenta hækkun launkostnaðar hjá sveitarfélögunum. Hann verður nú borinn undir atkvæði leikskólakennara og Launanefnd sveitarfélaga. Niðurstaða úr atkvæðagreiðslunni á að liggja fyrir upp úr miðjum janúar. Leikskólakennarar ákváðu í haust að fresta því að afla verkfallsheimildar fram yfir atkvæðagreiðslu grunnskólakennara um kjarasamning þeirra, en eftir að úrslit hennar varð ljós varð sú hreyfing á samningaviðræðum að ekki þótti enn ástæða til að afla heimildarinnar.
Fréttir Innlent Kjaramál Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira