Golffíkill í fitubollubolta 4. janúar 2005 00:01 "
Ég er mikið í golfi og stunda fótbolta einu sinni í viku. Ég fer alltof lítið í ræktina finnst mér en það er vegna þess að það er mikið að gera hjá mér. Ég er með lítinn grísling heima sem var að verða eins árs þannig að ég er heima hálfan daginn og hálfan daginn í vinnunni," segir Jón Gunnar. "Ég byrjaði í golfi í fyrrasumar með félögum mínum og við erum svo sannarlega komnir með golffíknina. Meira að segja orðnir félagar í Setbergi. Ég fer alltaf einu sinni í viku í golf á veturna og er í einhverri kennslu og er að reyna að geta eitthvað í þessu sporti. En þetta er rosa góð hreyfing. Endalaust labb," segir Jón Gunnar sem er líka liðtækur í boltanum. "Ég er í fitubollubolta einu sinni í viku með gömlum fótboltakempum sem voru að æfa þegar þeir voru yngri. Það er rosa stuð - sviti og hiti." En getur Jón Gunnar gert upp á milli þessara tveggja íþróttagreina? "Á sumrin togar golfið meira í mig en boltinn. En boltinn togar svo sem líka í mann þar sem ég fæ meiri útrás í boltanum en golfinu. En golfið er heillandi því ég er kominn á þennan aldur. Við golffélagarnir eru allir um og yfir þrítugt. Ég hreyfi mig alltof lítið en ég ætla að breyta því á nýbyrjuðu ári. Það er áramótaheitið."
Heilsa Mest lesið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Tónlist Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Lífið „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira