Hentar við kaup og sölu bifreiða 28. janúar 2005 00:01
Bifreiðaskoðun Frumherja við Hestháls býður viðskiptavinum sínum upp á ástandsskoðun bifreiða, sem hentar sérstaklega þeim sem standa í kaupum eða sölu á bifreiðum. "Við ástandsskoðun er bifreiðin meðal annars prufukeyrð og tekin í gegnum fjöldann allan af prófum sem gefa nákvæma mynd af ástandi hennar. Og nákvæm skýrsla er gefin í lok skoðunarinnar," segir Svanberg Sigurgeirsson þjónustustjóri ökutækjasviðs Frumherja. Eitt af þeim prófum sem bifreiðin fer í gegnum er prófun á dempurum þar sem henni er ekið yfir sérstakan búnað með skynjara sem er tölvutengdur og sýnir niðurstöðurnar á stórum tölvuskjá. "Á skjánum sjáum við samstundis hvert ástand demparanna er. Þar kemur meðal annars fram hversu góðar festingarnar eru og hversu mikill stífleikinn er," segir Svanberg. Tölvan sem notuð er til að prófa demparana les einnig og metur upplýsingar úr öðrum prófum. Þar á meðal hvað varðar stefnu dekkjanna og ástand á bremsum. "Tækið höfum við notað í ein fjögur ár og mest er það notað við ástandsskoðun, en það er ekki í lögum um bifreiðaskoðun að demparana eigi að keyra í gegnum eins nákvæmt próf og þetta er," segir Svanberg. Ástandsskoðun er hægt að panta hvenær sem er hjá Frumherja og kostar hver skoðun 5.200 kr. kristineva@frettabladid.is
Bílar Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira