Hákon Eydal á sér ekki málsbætur 18. mars 2005 00:01
Hákon Eydal, banamaður barnsmóður sinnar Sri Rahmawati, hlaut sextán ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hákoni er gert að greiða börnum Sri um tæplega 22 milljónir króna í skaðabætur. Það eru hæstu bætur sem dæmdar hafa verið í morðmáli. Verjandi Hákons telur hann ekki geta staðið skil á kröfunni. Hann eigi hvorki til þess fé né eignir. Ragnheiður Harðardóttir saksóknari segir niðurstöðuna í samræmi við það sem búist var við. Dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar en Hákon hafði krafist sýknar en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa. Hákon hefur setið í fangelsi frá því í júlí þegar hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald og dregst sá tími frá dómnum. Metskaðabætur Brynjar Níelsson, verjandi Hákons og hæstaréttarlögmaður, segir ekki fordæmi fyrir svo háum skaðabótum til aðstandenda. Þremur börnum Sri eru dæmdar misjafnlega háar skaðabætur. Það elsta sem er sextán ára fær samkvæmt dómnum um 5,5 milljónir, það næstelsta sem er fjórtán ára fær 6,2 og dóttur þeirra Sri og Hákonar sem er þriggja ára eru dæmdar rétt rúmar tíu milljónir. "Hákon mótmælti ekki kröfunum sem er ástæða ákvörðunar dómsins sem og kannski að börnin eru það ung," segir Brynjar en jafnframt að Hákon geti ekki greitt börnunum bæturnar. Hilmar Ingimundarson hæstaréttarlögmaður segir ríkið hlaupa undir bagga og greiða skaðabæturnar geri Hákon það ekki. "Börnin fá þó ekki þessa fjárhæð frá bótanefndinni því þar er hámarkið sex hundruð þúsund," segir Hilmar. Hægt sé að krefjast fjárnáms í eignir Hákonar. Verði það árangurslaust geti komið til gjaldþrots hans. Við lok gjaldþrotaskipta myndist firningarfrestur kröfunnar til tíu ára. Miðað við dóminn nú megi búast við að Hákon sitji inni í tólf ár. Ekki slegið af dómnum Brynjar segir sextán ára fangelsisdómnum áfrýjað þar sem rök séu fyrir því að refsingin ætti að vera vægari. "Verknaðurinn er framinn í geðshræringu og ákvæði eru í hegningarlögum um að það hafi áhrif á refsingu. Á það var ekki fallist nú," segir Brynjar. Í dómnum er greint frá niðurstöðu geðlæknis á andlegu ástandi Hákons. Geðlæknirinn mat hann sakhæfan og ábyrgan gerða sinna. Í áliti læknisins stendur að geðskoðun sýni ekki nein örugg einkenni sturlunar, rugls eða ranghugmynda. Skammvinn einkenni ofsóknarhugmynda og ofskynjanir virðist hafa komið fram á einstaka tímabilum en Hákon hafi þá örugglega verið í umtalsverðri fíkniefnaneyslu. Geðlæknirinn taldi að lýsing Hákons á sjálfum sér stangaðist á við álit náinna ættinga hans. Einnig að svo virtist sem Hákon hafi afneitað eða bælt mörg vandamál eða atburði sem yfirleitt trufli samvisku venjulegs fólks. Hann áleit að Hákon hafi skýr almenn skilmerki persónuleikatruflunar og lítið innsæi í eða skilning á hegðun sinni. Það hindri þó ekki sakhæfi hans. Iðraðist ekki gjörða sinna Auk voðaverks Hákons ræðst þyngd dómsins af því hvernig hann hagaði sér eftir morðið á Sri. Hákon reyndi að afmá öll merki morðsins og segir dómurinn meðferð hans á líkinu smánarlega. Hann hafi einsett sér að vera lögreglunni erfiður en hefði mátt vita að upp um hann kæmist. Hákon neitaði sök framan af lögreglurannsókninni og reyndi að villa um fyrir lögreglu í leitinni að líkinu eftir að hann hafði játað. Þetta auk skýrslu hans fyrir dómi og í geðrannsókninni þykir gefa til kynna að hann hafi ekki verið mjög sakbitinn eftir morðið á Sri. Sextán ár eða lífið? Sri Rahmawati var 33 ára gömul þegar hún lést. Hún var frá Indónesíu en hafði ásamt systur sinni og fjölskyldu hennar búið á Íslandi. Hákon og Sri kynntust fyrir fimm árum og bjuggu saman í fimm til sex mánuði. Saman eignuðust þau dóttur. Fyrir liggur að samband þeirra Sri og Hákons gekk erfiðlega. Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík má lesa um kærur Sri á hendur Hákonar fyrir ofbeldisverk og hótanir í hennar garð. Einnig eru til skjöl sem greina frá kvörtunum Hákonar vegna deilna þeirra á milli um umgegni við dótturina. Hákon bar því við fyrir dómi að hann hafi myrt Sri eftir að hún hafi hótað að hann fengi ekki framar að sjá dóttur þeirra. Andleg líðan hans, misgjörðir og ranglæti Sri hafi ollið því. Héraðsdómur fellst ekki á það sjónarmið Hákons og segir gögn málsins í engu styðja ásakanir hans. Hákon ósannfærandi Ekki verður séð að Sri hafi misboðið Hákoni þann afdrifaríka morgun þegar hann myrti hana, er niðurstaða Héraðsdóms. Lýsing Hákons á hugarástandi sínu þegar hann framdi morðið sé mótsagnakennt og ósannfærandi. "Atlaga hans að Sri Rahmawati var heiftarleg og bersýnilegt er, að hann ætlaði sér að svipta hana lífi. Ekki þykir þó sannað, að hann hafi ásett sér það fyrr en skömmu fyrir voðaverkið og verður að byggja á þeim framburði hans að hann hafi ráðist á konuna eftir að þeim varð sundurorða," segir í dómnum. Sextán ár eru því talin hæfileg refsing. Lík Sri Rahmawati fannst í djúpri og þröngri hraunsprungu í Almenningi fyrir sunnan Hafnarfjörð í þriðja ágúst mánuði eftir að Hákon myrti hana.
Dómsmál Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Erlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Erlent Fleiri fréttir Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Sjá meira