Byggir upp vöðva 26. apríl 2005 00:01 Laufey með lóðin á lofti.
aufey Karítas Einarsdóttir, nemi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, er nýbyrjuð að hreyfa sig aftur eftir barnsburð og nýtur dyggs stuðnings einkaþjálfarans síns. „Núna er ég í einkaþjálfun hjá Kolbrúnu Pálínu í Sporthúsinu. Ég er dansari og hef dansað mikið allt mitt líf. Ég á tvær stelpur og eftir það var ég líkamlega búin og gat ekki farið strax aftur að dansa heldur þurfti að byggja upp alla vöðva og komast í sæmilegt form til þess að geta dansað aftur. Kolbrún æfir líka innri vöðvana hjá mér en ekki bara ytri vöðvana,“ segir Laufey, sem eignaðist yngri dóttur sína fyrir sex mánuðum. „Ég byrjaði í einkaþjálfun þegar dóttir mín var fjögurra mánaða. Það er voðalega þægilegt að vera hjá Kolbrúnu í einkaþjálfun því ég þekkti hana áður og hún átti sjálf barn fyrir átta mánuðum þannig að við erum í raun í þessu saman.“ „Ég fann rosalegan mun á mér fljótlega eftir að ég byrjaði að lyfta en ég hef aldrei gert svona áður -- að lyfta lóðum á líkamsræktarstöð,“ segir Laufey, sem hugsar líka talsvert um mataræðið. „Ég þarf eiginlega hjálp við að þyngja mig,“ segir Laufey og blaðakona öfundar hana af því vandamáli. „Það er samt lúmskt erfitt og erfiðara heldur en hitt. Ég þarf að borða hollt en ég má samt ekki léttast því ég þarf að þyngja vöðvamassann. Ég reyni að borða skyr, kjöt og prótein í bland en ég hugsa tvímælalaust meira um það sem ég læt ofan í mig en áður.“
Heilsa Mest lesið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Bíó og sjónvarp Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira