Sport

Fabregas hjá Arsenal til 2011

Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas skrifaði í dag undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarliðið Arsenal sem gildir til ársins 2011. Cesc sem er aðeins 18 ára á að leysa af hólmi stöðu Patrick Vieira sem á dögunum var seldur til Juventus. "Hugsið ykkur hversu góður hann á eftir að verða eftir 6 ár; hann á eftir að verða besti leikmaður í heimi." sagði Joseba Diaz umboðsmaður Fabregas sem kom mun yngri að árum til Arsenal frá Barcelona.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×