Sport

Lamb flæmdi Zenden frá Boro

Hollenski miðjumaðurinn Bundewijn Zenden segir að stjórnarformaður Middlesbrough, Keith Lamb, hafi verið ástæðan fyrir því að leikmaðurinn kaus að ganga til liðs við Liverpool í stað þess að vera áfram hjá Boro. "Ég vildi vera áfram hjá Boro því þar leið mér vel. Ég átti gott tímabil og var kosinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum liðsins, þannig að mig langaði ekkert að fara. Það var hinsvegar Keith Lamb sem gerði mér erfitt um vik að vera áfram og svo kom tilboðið frá Liverpool, sem átti sæti í Meistaradeild og þá var ekki aftur snúið," sagði Zenden.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×