Sport

Eriksson aðvarar leikmenn sína

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, hefur varað leikmenn sína við því að ef þeir spila einhverntímann aftur eins og í síðari hálfleiknum gegn Dönum í gærkvöldi, geti þeir gleymt því að komast á HM næsta sumar. "Ég er búinn að gera leikmönnunum grein fyrir þessu og mun gera það aftur eftir hálfan mánuð," sagði Eriksson, en England leikur þá við Wales og Norður-Írland. "Ég vona svo sannarlega að við leikum aldrei aftur svona illa, því svona útreið er ekki góð fyrir sjálfstraust leikmanna," sagði Svíinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×