Sport

Stærsti ósigur Breta í 25 ár

Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands var æfur út í sína menn og vandaði þeim ekki kveðjurnar á Sky sjónvarpstðinni í gærkvöld eftir 4 - 1  tap enskra fyrir Dönum á Parken í Kaupmannahöfn. Danir léku Englendinga grátt í síðari hálfleik og það tók þá aðeins sjö mínútur að skora þrjú mörk. Dennis Rommendal, Jon Dal Tomason, Michel Gravegard og Sören Laursen skoruðu mörk Dana en Wayne Roony skoraði mark Englands. Ósigurinn í gær var stærsti ósigur enska landsliðsins í 25. ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×