Dregur úr hækkunum á íbúðaverði 17. október 2005 23:43
Dregið hefur úr verðhækkunum á íbúðamarkaði að undanförnu og spáir Greiningardeild Íslandsbanka því nú að íbúðaverð staðni á næsta ári. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um rúmlega hálft prósent í síðasta mánuði og er það í fyrsta skipti í eitt ár sem íbúðaverð lækkar milli mánaða. Íbúðaverð hefur hækkað um 3,4 prósent síðustu þrjá mánuði sem er talsvert minna en fyrstu þrjá mánuði ársins þegar íbúðaverð hækkaði um þrettán prósent. Sérfræðingar Greiningardeildar Íslandsbanka segja í Morgunkornum sínum í dag að svo virðist sem áhrif vaxtalækkana og hærra lánahlutfalls, sem komu til sögunnar á síðasta ári, séu að fjara út. Þeir spá því að íbúðaverð staðni í ríflega 200 þúsund krónum á fermetra á næsta ári en meðalverðið er nú 197 þúsund krónur á fermetra. Verðlækkana er ekki að vænta þó Greiningardeildin útiloki þær ekki; ef af verðlækkunum verður er það helst á nýbyggingum og stærri eignum.
Innlent Viðskipti Mest lesið Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Viðskipti innlent Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Neytendur Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Viðskipti innlent Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Atvinnulíf Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Viðskipti innlent Spá hressilegri vaxtalækkun Viðskipti innlent Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Samstarf Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Spá hressilegri vaxtalækkun Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Þrjú ráðin til Tryggja Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Nebraska heyrir sögunni til Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins Sætanýtingin aldrei verið betri í október Sjá meira