Hlutabréf í FL Group lækkuðu um 5% 23. október 2005 17:50
Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, sem meðal annars á Flugleiðir og Icelandair, sagði starfi sínu lausu í gærkvöldi, að því er netfréttaritið Travel People greinir frá í morgun. Aðrar heimildir fréttastofunu Stöðvar 2 og Bylgjunnar herma hins vegar að hún sé ekki formlega hætt en að það standi allt eins til, en ekki næst í talsmenn félagsins. Það liggur þó fyrir að Ragnhildur verður ekki við á skrifstofu sinni í höfuðstöðvum FL Group í dag. Að sögn Travel People er ástæðan sögð óánægja hennar með fyrirhuguð kaup FL Group á danska flugfélaginu Sterling og þá sérstaklega að FL Group ætli að greiða allt of hátt verð fyrir það. Travel People segir að talað sé um á fimmtánda milljarð íslenskra króna fyrir Sterling og Mearsk sameinuð í einum pakka. Jafnframt greinir fréttaritið frá frá því að Hannes Smárason, stjórnarformaður FL Group og forgöngumaðaur um kaupin á Sterling, muni að líkindum setjast í forstjórastólinn og Skarphéðinn Berg Steinarsson verði stjórnarformaður í hans stað. Loks segir Travel People að greint verði frá kaupunun á Sterling í kauphöllum í Danmörku og á Íslandi á morgun. Ekki hefur náðst í Ragnhildi Geirsdóttur í dag og Hannes Smárason, Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi og Skarphéðinn Berg Steinarsson stjórnarmaður hafa ekki svarað skilaboðum. Hlutabréf í FL Group hafa lækkað um rösklega fimm prósent í Kauphöllinni í morgun.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira