Viðskipti innlent

Bláa lónið á markað í nóvember

Árni Sæberg skrifar
Sigríður Margrét Oddsdóttir er forstjóri Bláa lónsins og Grímur Sæmundsen er stjórnarformaður, stofnandi og langsamlega stærsti eigandi félagsins.
Sigríður Margrét Oddsdóttir er forstjóri Bláa lónsins og Grímur Sæmundsen er stjórnarformaður, stofnandi og langsamlega stærsti eigandi félagsins. Bláa lónið

Á hluthafafundi Bláa Lónsins hf. í dag var formlega samþykkt að efna til almenns hlutafjárútboðs og óska eftir töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hluthafar samþykktu einnig kaupréttaráætlun fyrir allt fastráðið starfsfólk samstæðunnar.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að starfsemi Bláa Lónsins hafi vaxið verulega undanfarin ár. Skráning á aðalmarkað Nasdaq Iceland sé stór áfangi í sögu Bláa Lónsins. Skráning muni styrkja og breikka hluthafahópinn og gefa almenningi, fagfjárfestum og starfsfólki tækifæri til að eiga hlut í einu þekktasta fyrirtæki landsins. Stefnt sé að almennu hlutafjárútboði og skráningu í nóvember.

Starfsmenn verði hluthafar

Kaupréttaráætlunin sem samþykkt var nái til alls fastráðins starfsfólks Bláa Lónsins hf. og dótturfélaga þar sem félagið á yfir 90 prósent hlut í, alls um 700 einstaklinga. Hver kaupréttarhafi öðlist rétt til að kaupa hluti í félaginu fyrir allt að 1,5 milljónir króna einu sinni á ári í fimm ár, á árunum 2028 til 2032, eða samtals fyrir allt að 7,5 milljónir króna.

„Starfsfólkið okkar er sá hópur sem skapar þá einstöku upplifun og þær einstöku vörur sem viðskiptavinir okkar um allan heim þekkja. Það skiptir okkur miklu að þegar félagið tekur þetta skref inn á markað geti allt fastráðið starfsfólk tekið þátt í vextinum fram undan,“ er haft eftir Hildi Þórisdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs Bláa Lónsins.

Markmið kaupréttarkerfisins sé að halda í og laða að framúrskarandi starfsfólk og gefa því hlutdeild í árangri félagsins.

Áætlunin sé gerð í samræmi við ákvæði laga um tekjuskatt og verði borin undir Ríkisskattstjóra til staðfestingar áður en gengið verður frá kaupréttarsamningum við starfsfólk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×