Sport

Íhugar að fara frá Liverpool

NordicPhotos/GettyImages

Pólski markvörðurinn Jerzy Dudek segir að hann vilji fara frá Liverpool ef hann nær ekki að vinna sér sæti í byrjunarliðinu áður en félagaskiptaglugginn á Englandi opnast í janúar.

Dudek, sem var hetja Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor, hefur ekki átt sæti í liðinu síðan splænski markvörðurinn Jose Reina kom til félagsins í sumar.

"Ég verð að spila eitthvað áður en Heimsmeistaramótið byrjar, því annars get ég ekki átt von á því að verða í landsliðinu, því það yrði mér mikið áfall að missa af HM," sagði Dudek. "Ég verð að ræða við Rafa Benitez um framtíð mína og kannski verð ég bara að horfa í kring um mig í janúar. Þetta veltur allt á Benitez, ef hann vill gefa mér tækifæri mun ég nýta mér það. Ég hef mikla löngun á að berjast fyrir sæti mínu," sagði sá pólski.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×