Sport

Ég stend í þakkarskuld við Martin Jol

NordicPhotos/GettyImages

Egypski framherjinn Mido hjá Tottenham þakkar Martin Jol knattspyrnustjóra sínum fyrir að hafa gefið sér tækifæri til að bjarga ferlinum eftir að hann kom sem lánsmaður til Lundúna frá AS Roma á Ítalíu.

Mido náði ekki að festa sig í sessi hjá Roma, frekar en hjá þeim liðum sem hann hafði leikið með áður og hafði orð á sér fyrir að vera vandræðagemlingur. Mido segir að það að snúa aftur til Roma sé það síðasta sem hann óski sér.

"Ég átti við ákveðin vandamál að stríða, en Jol hefur hjálpað mér að komast á réttan kjöl og ég er staðráðinn í að bregðast honum ekki. Þetta félag hefur mikinn metnað og er á réttri leið, svo ég vil um fram allt vera áfram hjá Tottenham," sagði Mido, en allt eins er búist við að félagið kaupi leikmanninn þegar lánssamningnum lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×