Æfur út í Barcelona 22. desember 2005 16:30 Arsene Wenger lætur Barcelona heyra það NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er æfur út í forráðamenn Barcelona fyrir að lýsa nýverið yfir opinberlega að félagið ætlaði sér að ná í franska framherjann Thierry Henry frá Arsenal og segir það vanvirðingu við félagið. Joan Laporta, forseti Barcelona hélt því fram í vikunni að Barcelona ætlaði að tjalda öllu til að næla í Thierry Henry, sem enn hefur ekki viljað ræða framlengingu á samningi sínum við enska félagið. "Maðurinn getur ekki komið með svona yfirlýsingar og ég mun reyna að gera eitthvað í málinu, þetta er bæði ósanngjarnt og svo grefur þetta undan okkur. Ef þessir menn vilja fá Henry í sínar raðir, verða þeir að hringja í okkur, því hann á enn 18 mánuði eftir af samningi sínum við Arsenal," sagði Wenger reiður í samtali við BBC í dag og sagði aðferðir Barcelona til að lýsa yfir áhuga sínum á leikmanninum bera vott um virðingarleysi. "Að mínu mati eiga stjórnarmenn félaga, hvort sem það er Doncaster eða Barcelona, að sýna knattspyrnunni virðingu og fara eftir settum reglum. Ég hef engar áhyggjur af Thierry Henry og framtíð hans, en mér þykir þetta mál koma neikvæðri umfjöllun af stað um Arsenal og við höfum ekkert með slíkt að gera," sagði Wenger.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“ Körfubolti Hentu yfir hundrað þúsund böngsum inn á völlinn Sport Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Fótbolti Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Fótbolti Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Handbolti Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Enski boltinn Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Golf Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Enski boltinn Æfur yfir sniðgöngunni: „Að mínu mati er þetta skandall“ Sport Öskraði í miðju vítaskoti Körfubolti Fleiri fréttir Rekinn frá West Ham og Potter að taka við Ronaldo hvetur Al-Nassr til að kaupa Casimero Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Æfur yfir sniðgöngunni: „Að mínu mati er þetta skandall“ Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Zidane líklegastur til að taka við af Deschamps Mikið áfall fyrir Eyjakonur Fóru í leikinn Hvar spilar hann? Skoraði ótrúlega sigurkörfu fyrir aftan miðju Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið Rosický gæti snúið aftur til Arsenal Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Hjörtur þriðji úr vörn landsliðsins í Grikklandi Sjáðu mörk Newcastle gegn Arsenal „Jafnvel Salah væri í vandræðum hjá Tottenham“ Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Öskraði í miðju vítaskoti „Á örugglega eftir að sjá eftir því á einhverjum tímapunkti“ „Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“ Dagskráin: Undanúrslit hjá Liverpool og Körfuboltakvöld kvenna Hentu yfir hundrað þúsund böngsum inn á völlinn Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt „Kannski bara ágætt að tapa einum og ná jarðtengingu“ Deschamps hættir með Frakka eftir HM 2026 Uppgjörið: Valur - Tindastóll 73-64 | Valskonur kældu Stólana niður Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Haukar 75-82 | Haukakonur juku forskotið Newcastle með manninn sem Arsenal vantar „Við lokuðum á allt sem þær reyndu að koma með í endann“ Sjötíu daga bið lengist enn eftir frábæra endurkomu Hamars/Þórs Sjá meira