Coca Cola skilaði methagnaði 18. júlí 2006 15:54 Gosdrykkjaframleiðandinn Coca Cola skilaði methagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins.
Hagnaður bandaríska gosrisans Coca Cola nam 1,85 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 140 milljarða íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta er sjö prósenta hækkun á milli ára og heilum 6 sentum meira á hlut en fjármálasérfræðingar höfðu spáð fyrir um. Hagnaður fyrirtækisins á fyrstu sex mánuðum ársins hefur aldrei verið meiri. Tekjur námu 6,48 milljörðum dala, tæpum 492 milljörðum íslenskra króna og er það þriggja prósenta hækkun frá sama tíma í fyrra. Að sögn fyrirtækisins jókst sala á drykkjum og öðrum vörum fyrirtækisins að meðaltali um 4 prósent um allan heim en mest var söluaukningin í Kína, Rússlandi, Tyrklandi og í Argentínu. Til samanburðar jókst salan einungis um 2 prósent í Bandaríkjunum sjálfum en um 7 prósent í Suður-Ameríku. Hagnaður Coca Cola á fyrstu sex mánuðum ársins nam 2,94 milljörðum dala, jafnvirði rúmra 223 milljarða íslenskra króna, og er það nýtt met frá sama tíma á síðasta ári.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira