Vill ekki sjá foreldrana 28. ágúst 2006 07:45 Vinkonur Natöschu Þrjár fyrrverandi vinkonur Natöschu í viðtali fyrir utan húsið í smábænum Strasshof norðaustur af Vínarborg þar sem hún var í gíslingu. MYND/AP
Austurríska stúlkan sem fannst í síðustu viku eftir að hafa verið í haldi mannræningja í átta og hálft ár, hefur rétt á að vera látin í friði. Þetta sögðu talsmenn austurrísku lögreglunnar í gær, eftir að foreldrar stúlkunnar kvörtuðu yfir því í fjölmiðlaviðtölum að vera meinað að hitta dótturina endurfundnu. Foreldarnir, sem skildu skömmu eftir að stúlkan hvarf, hafa aðeins fengið að sjá hana í nokkrar mínútur til að bera kennsl á hana, en hún hefur síðan verið "á öruggum stað" í umsjá sálfræðinga. Talsmenn lögreglu tóku fram í gær að stúlkan væri ekki í haldi. Hún hefði sjálf óskað eftir því að hitta engan núna um helgina, heldur ekki foreldrana. "Ef Natascha vill fara niður í miðbæ [Vínarborgar] og fá sér kaffi, þá er henni það frjálst," sagði Gerhard Lang, talsmaður rannsóknarlögreglunnar. "Ef hún vill getur hún farið hvert sem henni sýnist," sagði hann. Natascha Kampusch skaut aftur upp kollinum í síðustu viku og í ljós kom að hinn 44 ára gamli Wolfgang Priklopil hafði rænt henni og haldið í gluggalausu kjallaraherbergi í húsi sínu í allan þennan tíma, frá því hann rændi henni þegar hún var á leið í skóla þann 2. mars 1998. Priklipil fyrirfór sér eftir að hún slapp úr prísundinni. Hún notaði tækifærið til að laumast út þegar hann var upptekinn í símanum. Reinhard Haller, þekktur sálfræðiprófessor, sagði í útvarpsviðtali að Kampusch yrði nú að læra að treysta aðstandendum sínum og kynnast öryggistilfinningu. Samkvæmt fjölmiðlafrásögnum var Kampusch óhuggandi er hún frétti að fangari hennar hefði látið lífið. Eftir Haller er haft að Priklopil hafi heilaþvegið stúlkuna. Hún virtist þjást af "Stokkhólms-heilkenninu" á háu stigi, en það er þegar gísl fer að "halda með" fangara sínum og kvað vera algeng sálfræðileg varnarviðbrögð sem gera gísl fangavistina bærilegri.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira