Erlent

Bar­áttan um Brasilíu

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Forsetaframbjóðendurnir tveir tókust á í kappræðum í sjónvarpssal á sunnudaginn síðastliðinn. 
Forsetaframbjóðendurnir tveir tókust á í kappræðum í sjónvarpssal á sunnudaginn síðastliðinn.  AP

Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og vinstrimannsins Lula da Silva og frambjóðanda hægrimanna og öldungadeildarþingmannsins Flávio Bolsonaro.

Flávio Bolsonaro hafði betur gegn hinum áttræða Lula í fyrri umferð forsetakosninganna þann 4. október síðastliðinn. Hann náði þó ekki hreinum meirihluta og verður því kosið á milli þeirra tveggja í annarri umferð í dag. Hafði Lula mælst með meira fylgi í aðdraganda fyrri umferðar kosninganna og því voru niðurstöðurnar nokkuð óvæntar.

Á síðustu vikum hefur framboð Lula þó sótt í sig veðrið og ganga þeir til kosninga nánast hnífjafnir í könnunum. Aldrei hefur frambjóðanda sem laut í lægra haldi í fyrri umferð tekist að vinna upp forskotið og sigra seinni umferðina, segir í umfjöllun BBC um málið. Ljóst er að um ófyrirsjáanlega kosninganótt sé að ræða.

Flávio, sem er 45 ára, er sonur Jairs Bolsonaro fyrrum forseta sem afplánar nú tuttugu og sjö ára fangelsisdóm fyrir að hafa skipulagt misheppnaða valdaránstilraun eftir að hafa tapað forsetakosningunum árið 2022 gegn Lula. Flávio hefur heitið því að náða föður sinn nái hann kjöri.

Sjá einnig: Bolsonaro í stofu­fangelsi

Brasilíska þjóðin hefur skipst í fylkingar í kosningunum. Lula nýtur meiri vinsælda meðal tekjulágra, kaþólikka og kvenna en hann sækist nú eftir því að verða kosinn forseti í fjórða sinn. Hann vann afar nauman sigur á Bolsonaro eldri í kosningunum árið 2022 og eftir þær kosningar réðust stuðningsmenn Bolsonaro á opinberar byggingar landsins.

Brasilíski eða bandaríski fáninn

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrri umferð kosninganna „mjög stóran“ sigur en hefur ekki formlega lýst stuðningi sínum við neinn frambjóðanda, segir í umfjöllun Reuters. Lula ávarpaði stuðningsmenn sína í gær og sagði að kosningarnar snerust um fullveldi og að kjósendur veldu á milli þess sem kyssti brasilíska fánann eða þann bandaríska.

Sitjandi forseti Brasilíu Luiz Inacio Lula da Silva heilsaði stuðningsmönnum sínum á kosningafundi í Sao Paulo í gær. AP

Lula hefur sakað andstæðing sinn um að leggja á ráðin með ríkisstjórn Trumps og Bandaríkjunum um að reyna að hafa áhrif á kosningarnar. Forseti kjörstjórnar Brasilíu sagði daginn eftir fyrri umferð kosninganna að engar vísbendingar hefðu fundist um erlend afskipti af kosningunum.

Sagðir hafa staðið í herferð til að koma Bolsonaro til valda

 Fréttaveitan Reuters hefur eftir tíu bandarískum embættismönnum, bæði núverandi og fyrrverandi, að tveir embættismenn bandaríska utanríkisráðuneytisins hefðu staðið í herferð til að koma Bolsonaro-fjölskyldunni aftur til valda í Brasilíu. Heimildarmenn Reuters segja þá hafa gefið bandarískum erindrekum í Brasilíu þau fyrirmæli að koma Jair Bolsonaro, föður Flávio, til valda en þeir hafi snúið sér að framboði sonar hans þess í stað í kjölfar fangelsisdóms Jair. 

Komist Flávio Bolsonoro til valda stefnir hann að því að náða föður sinn sem afplánar nú 27 ára stofufangelsisdóm fyrir tilraun til valdaráns árið 2022.AP

Frá því í fyrra hafa mennirnir tveir með góðum árangri talað fyrir refsiaðgerðum bandarískra stjórnvalda gegn Brasilíu sem ætlað var að veikja Lula og styrkja Bolsonaro-fjölskylduna, að sögn heimildarmannanna tíu. Meðal aðgerðanna var að skilgreina brasilísk glæpagengi sem hryðjuverkasamtök og ​beita refsiaðgerðum gegn æðstu embættismönnum og dómurum landsins.

Hvíta húsið hafi ekki tjáð sig um málið og óljóst sé að hvað miklu leyti mennirnir hafi starfað undir fyrirmælum þess eða Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 

Að auki myndi sigur Bolsonaro þýða að Brasilía gengi til liðs við bandalagið Shields of Americas gegn eiturlyfjasmygli og tengdist um leið Bandaríkjunum nánari böndum.


Tengdar fréttir

Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð

Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro tilkynnti formlega framboð sitt til forseta Brasilíu í dag en hann er sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×