Farmurinn vegur 17,5 tonn 10. september 2006 08:00 MYND/AP
Geimskutlunni Atlantis var loksins skotið á loft í gær með sex geimfara innanborðs. Leiðangurinn heldur til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar en þetta er fyrsta geimskotið þangað frá því að geimskutlan Columbia fórst á leið þaðan til jarðar í febrúar árið 2003. Sjö geimfarar fórust í slysinu sem átti sér stað sextán mínútum fyrir áætlaðan lendingartíma. Tilgangur leiðangursins er að halda áfram uppbyggingu geimstöðvarinnar sem hefur legið niðri í þau þrjú og hálft ár sem liðin eru frá Columbiu-slysinu. Orsök slyssins var sú að brot af harðnaðri einangrunarfroðu féllu af ytra byrði eldsneytistanks geimskutlunnar þegar hún tókst á loft og sködduðu væng skutlunnar. Síðan þá hafa sérfræðingar NASA, geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, unnið að því að koma í veg fyrir að slíkt slys geti hent aftur. Atlantis flytur einn þyngsta farm sem hefur verið skotið út í geim og vegur 17,5 tonn. Þar á meðal eru tvær sólarrafhlöðuplötur sem munu framleiða raforku fyrir stöðina. Áætlað er að senda fjórtán leiðangra í viðbót til að ljúka smíði geimstöðvarinnar fyrir árið 2010. Mun NASA þá snúa athygli sinni að tunglinu og mars.
Erlent Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira