Staðfesta að Norður-Kórea sprengdi kjarnorkusprengju 17. október 2006 05:00 Hlaupið í skjól Vegfarendur í Seúl hlaupa í skjól í hervarnaræfingu, sem efnt var til í gær. Slíkar æfingar eru haldnar reglulega einu sinni í mánuði til að minna landsmenn á að enn ríkir þar stríðsástand. MYND/AP
Rannsókn á loftsýnum, sem tekin voru í síðustu viku, staðfesta að Norður-Kóreumenn gerðu í raun tilraun með kjarnorkusprengju neðanjarðar, eins og þeir hafa sjálfir haldið fram. Bandarískir leyniþjónustumenn framkvæmdu rannsóknina en John Negroponte, yfirmaður bandarískra leyniþjónustustofnana, skýrði frá niðurstöðunum í gær. Um helgina samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun þar sem tilraunin var fordæmd og jafnframt ákveðið að beita Norður-Kóreu refsiaðgerðum, án þess þó að hóta hervaldi. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar að bregða sér til Suður-Kóreu, Kína og Japans nú í vikunni til þess að ræða framkvæmd refsiaðgerðanna, sem meðal annars fela í sér að eftirlit verður með öllum vöruflutningum til og frá Norður-Kóreu. Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í gær að kínverskir tollverðir væru nú þegar byrjaðir að framkvæma slíkt eftirlit við landamæri Norður-Kóreu. Stjórnvöld í Japan og Ástralíu skýrðu síðan í gær frá því að þau myndu hugsanlega grípa til harðari refsiaðgerða en tilgreindar eru í ályktun öryggisráðsins.
Erlent Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira