Lífskjör næstbest á Íslandi 14. nóvember 2006 05:15 Skýrslan kynnt Frá blaðamannafundi í húsnæði Félags Sameinuðu þjóðanna í gær. Tryggvi Jakobsson í pontu og Søren Mandrup Petersen t.h. MYND/Hörður
Noregur, Ísland, Ástralía, Írland og Svíþjóð raða sér í efstu sæti lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna (HDI), sem gefinn er út með þróunarskýrslu stofnunarinnar í ár (Human Development Report). Í lífskjaralistanum er tekið tillit til þriggja þátta, lífslíkna, menntunarstigs og þjóðartekna á mann samkvæmt kaupmáttarstuðli. Verst eru lífskjörin samkvæmt þessari mælingu í Afríkuríkinu Níger. Það vermir botnsæti listans, það 177., með lífskjarastuðulinn 0,311. Ísland mælist með stuðulinn 0,96 en Noregur 0,965. Yfirskrift þróunarskýrslu SÞ í ár er „Handan skorts: Völd, fátækt og vatnskreppan í heiminum“. Eins og fram kom í máli Sørens Mandrup Petersen, fulltrúa norrænu skrifstofu þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, UNDP, sem kynnti skýrsluna á blaðamannafundi í Reykjavík í gær, er í henni vakin athygli á þeim alvarlega vanda sem skortur á aðgengi að neysluvatni veldur í þróunarlöndunum. Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, kynnti á fundinum umfangsmikið vatns- og hreinlætisverkefni sem stofnunin er að hefja í Malaví. Verkefnið verður unnið í samstarfi við þrjú ráðuneyti í Malaví og héraðsstjórnir á Monkey Bay-svæðinu í suðurhluta landsins. Um er að ræða verkefni til fjögurra ára sem hefst fyrir áramót og lýkur í árslok 2010. Verkefnið er stórt á mælikvarða Þróunarsamvinnustofnunar. Kostnaðartölur hljóða upp á rúmlega þrjár milljónir Bandaríkjadala fyrir verkið í heild, þar af er hlutur ÞSSÍ alls 2,6 milljónir dala eða rúmlega 180 milljónir króna.
Erlent Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira