Merrill Lynch gerir upp á milli bankanna 15. nóvember 2006 06:00
Merrill Lynch segir Landsbankann núna eftirlætisbanka sinn á Íslandi í nýrri greiningu á íslenska bankakerfinu. Ástæða þess er að Merrill Lynch telur Landsbankann síst áhættusækinn í rekstri sínum og gerir athugasemdir við aðkomu Glitnis að kaupum Baugs Group á House of Fraser og sölutryggingunni á hlutabréfum Icelandair. Þá er hnýtt í kaup Kaupþings banka á 7,8 prósenta hlut í norska tryggingafélaginu Storebrand og aðkomu bankans að kaupum John Hargreaves á Matalan. „Færslur sem þessar teljum við nýbreytni hjá Glitni,“ segir í greiningu Merrill Lynch og rekur aukna áhættusækni bankanna til árangurs þeirra við að sækja sér fé með skuldabréfaútgáfu utan Evrópu. Þó kveður við nokkuð jákvæðari tón í umfjölluninni um íslensku bankana en áður. Þannig segir Merrill Lynch að fleiri ákjósanlegir fjárfestingarkostir séu til við hlið íslensku bankanna, en kveðst ekki afhuga fjárfestingum í þeim til lengri tíma. Merrill Lynch dregur þá ályktun af hlutafjáraukningu Kaupþings að til standi kaup á erlendum banka. Eins er talið líklegt að Glitnir færi frekar út kvíarnar.
Viðskipti Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira