Vill byrja á Ísrael og Palestínu 15. nóvember 2006 06:30 Tony Blair Segist ekki ætla að reyna að fá ráðamenn í Íran og Sýrlandi til þess að breyta um stefnu. fréttablaðið/ap MYND/AP „
Stór hluti af lausninni á Íraksvandanum liggur ekki innan landamæra Íraks heldur utan þeirra,“ sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í ræðu um utanríkismál sem hann flutti á mánudagskvöld. Hann kynnti síðan metnaðarfull áform stjórnar sinnar varðandi Mið-Austurlönd, en tók jafnframt fram að það væri misskilningur að þau áform snerust um að fá ráðamenn í Íran og Sýrlandi til þess að taka upp breytta stefnu. „Þvert á móti, við ættum að byrja á Ísrael/Palestínu. Það er kjarninn. Síðan ættum við að ná framförum í Líbanon,“ og þannig koll af kolli. „Það sem er að gerast í Mið-Austurlöndum núna er ekki flókið. Það er einfalt,“ sagði Blair og fór síðan að tala um Íran, sagðist skilja vel að Íranar séu í raun og sann dauðhræddir við Bandaríkin, en sá ótti sé með öllu ástæðulaus. Bandaríkin ætli sér ekkert að ráðast með hervaldi á Íran. Vandinn sem stafi af Írönum sé hins vegar sá að þeir „nota þrýstipunkta í þessum heimshluta til að leggja stein í götu okkar. Þeir hjálpa öfgafyllstu öflunum í Hamas í Palestínu, Hezbollah í Líbanon og sjía-herflokkum í Írak“. Bretar verði því að vinna með Bandaríkjamönnum og öðrum Vesturlöndum að því að létta þrýstingnum af þessum stöðum, hverjum á fætur öðrum. Það sé eina leiðin og það muni taka langan tíma að fara þá leið, heila kynslóð.
Erlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Sjá meira