Lítið magn e-taflnaveldur skemmdum 29. nóvember 2006 03:30 Ný hollensk rannsókn bendir til þess að e-töflunotkun í litlu magni hafi slæm áhrif á heilann.
Lítið magn af e-töflum þarf til þess að valda heilaskemmdum hjá fólki sem aldrei hefur tekið lyfið áður, segir í nýrri rannsókn sem Háskólinn í Amsterdam lét gera og fréttavefur BBC skýrir frá. Vísindamenn skólans létu taka heilaskann og minnispróf hjá 188 manns sem aldrei höfðu notað eiturlyfið, en voru taldir í áhættuhópi. Átján mánuðum síðar voru prófin endurtekin. Þá höfðu 59 þeirra tekið að meðaltali sex e-töflur hver, og uppgötvuðu vísindamennirnir þá að hjá þeim öllum komu fram skýr merki um minnkað blóðflæði til heilans og minnistap. Lengi hefur verið ljóst að langtímanotkun á e-töflum hefur slæm áhrif á heilann, en þetta er í fyrsta sinn sem svo lítil notkun á eiturlyfinu er mæld. „Við vitum ekki hvort þessi áhrif eru tímabundin eða varanleg,“ sagði Maartje de Win, sem fór fyrir rannsókninni og bætti við að frekari rannsóknir væru nauðsynlegar. „Við vitum að langtímanotkun hefur langvarandi áhrif, svo það er líklegt að skemmdirnar byrji um leið og fólk hefur notkun á eiturlyfinu,“ sagði Fabrizio Schifano, prófessor við Hertfordshire-háskólann í Bretlandi.
Erlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira