Innlent

Ók á bíl og stakk af

Ökumaður á leið til Reykjavíkur ók yfir á rangan vegarhelming nærri Litlu kaffistofunni um tíuleytið í gærkvöldi og utan í bifreið sem á móti kom, skipti engu þó ökumaður þeirrar bifreiðar hefði vikið vel yfir í sinn vegarkant.

Ökumaðurinn sem varð valdur að árekstrinum stöðvaði þó ekki heldur hélt óhikað áfram til Reykjavíkur þar sem hann var handtekinn, grunaður um ölvun. Þetta var þriðja atvikið, þar sem ökumaður ók yfir á vitlausan vegarhelming síðan á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×