Hagnaður Sorpu nam 54,7 milljónum 28. mars 2006 12:01 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hagnaður Sorpu b.s. namk 54,7 milljónum króna á síðasta ári en var 53,9 milljónir árið 2004. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 166,2 milljónum króna á tímabilinu en var 148,3 milljónir króna árið á undan. Í tilkynningu kemur fram að rekstrartekjur samlagsins námu 1.498,8 milljónum króna árið 2005 samanborið við 1.341,9 milljónir króna árið 2004. Það er 11,7 prósenta hækkun á milli ára. Rekstrargjöld, án afskrifta og fjármagnsliða voru 1.332,7 milljónir króna samanborið við 1.193,6 milljónir króna 2004 og er hækkunin 11,6 prósent. Heildareignir Sorpu b.s. í árslok námu 1.585 milljónum króna og voru heildarskuldir 665 milljónir. Eigið fé var 920 milljónir króna og hafði það aukist um 58 milljónir frá upphafi árs eða um 6,7 prósent. Eiginfjárhlutfall var rúm 58 prósent en var í lok síðasta árs um 50,8 prósent. Þá segir í tilkynningunni að handbært fé frá rekstri á síðasta ári hafi verið 172,4 milljónir króna en var 143,9 milljónir árið á undan. Veltufjárhlutfall í árslok 2005 var 1,01 og handbært fé nam 121,1 milljón króna. Fjárfestingarhreyfingar ársins námu 117 milljónum króna og fjármögnunarhreyfingar 228,7 milljónum króna. Þá kemur fram að rekstur Sorpu b.s. á árinu 2005 hafi að mestu verið í samræmi við áætlanir samlagsins og sé ekkert sem bendi til annars en að rekstur ársins 2006 verði í samræmi við áætlanir fyrir árið 2006.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Sjá meira