Vorblót - Rite of Spring 28. apríl 2006 14:53
Vorblót er ný tónlistarhátíð sem hófst á NASA við Austurvöll fimmtudagskvöld með tónleikum Mezzoforte og Ife Tolentino frá Brasilíu. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin, en ætlunin er að hún verði fastur viðburður í tónlistarlífi höfuðborgarinnar. Hún ber nafnið Rite of Spring á alþjóðlegum vettvangi, en bæði blaðamenn og almennir hátíðargestir eru væntanlegir að erlendis frá á hátíðina. Á hVorblótinu ægir saman ýmsum tónlistarstefnum og straumum eins og jazz, fönk, salsa, blús og heimstónlist. Þar koma fram tónlistarmenn frá ýmsum heimshornum t.a.m. sígaunabandið KAL frá úthverfum Belgrad, Salsa Celtica frá Edinborg, bossa nova listamamaðurinn Ife Tolentino frá São Paulo og Stórveit Nix Noltes frá Reykjavík. Vorblót - Rite of Spring er haldin af Hr. Örlygi í samvinnu við Icelandair. Föstudagurinn 28. apríl kl. 20.00 - húsið opnar kl. 21.00 - Petter Winnberg fer á svið, Flís & Bogomil Font í kjölfarið ---tónleikadagskrá endar kl. 00.00--- kl. 00.00 - Soul Jazz Records prsents: 100% Dynamite kl. 04.00 - Áætluð dagskrárlok Miðaverð: 2.900 krónur (auk 225 króna miðgjalds) Miðaverð fyrir 100% Dynamite klúbbinn eingöngu (frá miðnætti): 1.000 krónur. Forsala aðgöngumiða fer fram í verslunum Skífunnar, BT á Selfossi og Akureyri og á netinu hjá www.Midi.is. Einnig verða seldir miðar á tónleikadag á NASA.Flís og Bogomil Font Flís og Bogmili Font kynna til leiks nýtt samstarsverkefni á Vorblótinu sem byggist á hressilegri calypso tónlist frá Trinidad og Tobago og klúrum íslenskum textum og fréttaskýringum. Breiðskífa með herlegheitunum er væntanleg, en skemmst er að minnast þess að síðasta plata Flís, Vottur, fékk frábærar viðtökur hjá jafnt plötukaupendum sem gangrýnendum.Vefur: www.flismusic.com Petter WinnbergBassaleikarinn, lagasmiðurinn og söngvarinn Petter Winnberg úr Hjálmum kemur hingað til lands ásamt fríðu föruneyti og frumflytur efni af nýrri sóló breiðskífu sinni á Vorblótinu. Platan, sem hefur hlotið heitið Easily Tricked, inniheldur 10 lög sem sem skilgreina má sem Rhythm and blues af hinni bestu og hreinskilnustu gerð. Hún mun koma út á hinu rammíslenska plötufyrirtæki Gus Gus liða Pineapplerecords og er dreift af Smekkleysu hérlendis en Intergroove á heimsvísu. Petter hefur spilað jazz, blues og reggí með fjöldanum öllum af tónlistarfólki frá öllum heimshornum en er eflaust þekktastur hérlendis sem meðlimur í reggí sveitinni Hjálmar.Vefur: http://www.pineapplerecords.com/petterwinnberg/pdf/PetterWinnberg_Promosheet.pdf Soul Jazz Records presents: 100% DynamiteHið virta plötumerki Soul Jazz Records kemur með klúbbinn sinn 100% Dynamite á Vorblótið og framreiðir ofan í hátíðargesti hágæða fönk, reggí, rocksteady, dub, soul, ska og dancehall. Klúbburinn hefur aðsetur sínar í Lundunúm en við sérstök tækifæri taka plöstunúðar hans hugmyndafræðina út fyrir landsteinana í formi The Soul Jazz Soundsystem. Þeim til halds og traust á Vorblótinu verður MC Ox og úr verður dansvænt prógramm á sviðinu á NASA:Vefur: http://www.souljazzrecords.co.uk/events/ Laugardagurinn 29. aprílkl. 20.00 - húsið opnar kl. 21.00 - Stórsveit Nix Noltes fer á svið, KAL í kjölfarið kl. 00.00 - Áætluð dagskrárlokMiðaverð: 2.900 krónur (auk 225 króna miðgjalds) Forsala aðgöngumiða fer fram í verslunum Skífunnar, BT á Selfossi og Akureyri og á netinu hjá www.Midi.is. Einnig verða seldir miðar á tónleikadag á NASA.KALEitt mest spennandi númerið á Vorblótinu er án efa serbneska sígauna hljómsveitin KAL sem með sinni fyrstu breiðskífu hefur tekið hefur heimsbyggðina með trompi. Frá úthverfum Belgrad borgar hefur hljómsveitin nú komist á kortið í tónlistarbransanum og situr nú í fyrsta sæti Heimstónlistarlista Evrópu (World Music Chart Europe). Platan, sem er samnefnd sveitinni, kom út fyrir skemmstu hjá plötuútgáfunni Asphalt Tango og er hljóðblönduð af Mike Nielson, manninum á bakvið hljóðvinnslu Jamiroqai. Tónlist sveitarinnar má lýsa sem balkan rokkabillí, taktfastri þjóðlagatónlist sem drifin er áfram af krafti og spilagleði. Breska tónlistarblaðið Play Music segir að hér sé ferð sígauna rokka eins og það gerist best; "This is the Sound of the Suburbs. The Belgrade suburbs, to be precise, and the international debut of Serbian gypsy seven-piece Kal. It's big Balkan rock'n'roma, but listen hard and you'll see there's relatively little trickery going here, just gypsy instruments playing traditional melodies with a heavy dose of bouncing bass and manic energy."Vefur: www.asphalt-tango.de/welcome-atr.html Stórsveit Nix NoltesFyrir tveimur árum kom hópur reykvískra tónlistarmanna saman vegna áhuga sinni búlgaskri þjóðlagatónlist og annari tónlist frá balkanskaganum og úr varð Stórsveit Nix Noltes. Síðan þá hefur sveitin leikið á fjölmörgum tónleikum í Reykjavík, m.a. á Iceland Airwaves hátíðinni í fyrra, og gefið út breiðskífuna Orkídeur Havaí hjá 12 tónum og Bubblecore Records í Bandaríkjunum. Í lok síðasta árs fór sveitin á tónleikaferð með Animal Collective um Evrópu og Bandaríkin og í mars lék hún á South by SouthWest tónlistarhátíðinni í Austin, Texas, við góðan orðstír.Vefur: www.nixnoltes.tk Sunnudagurinn 30. aprílkl. 20.00 - húsið opnar kl. 21.00 - KK og Blue Truck fer á svið, Salsa Celtica í kjölfarið kl. 00.00 - Áætluð dagskrárlokMiðaverð: 2.900 krónur (auk 225 króna miðgjalds). Forsala aðgöngumiða fer fram í verslunum Skífunnar, BT á Selfossi og Akureyri og á netinu hjá www.Midi.is. Einnig verða seldir miðar á tónleikadag á NASA.Salsa CelticaSkoska hljómsveitin Salsa Caltica slær botnin í Vorblótarhátíðina með funheitri blöndu sinni af salsa, kúbönskri charanga áhrifumtónlist og keltneskri sveiflu. Sveitin hefur fengið stórgóða dóma fyrir sína nýjustu breiðskífu El Camino og túrað um alla Evrópu og Norður-Ameríku til að fylgja plötunni eftir og m.a. komið fram á Atlantic Jazz Festival í Kanada, Tous Les Ports Du Monde í Frakklandi, The Latin Quarter Festival í Írlandi, International Latin Festival í Singapúr, Jazz Café í London og Isle of Man og BBC Proms In The Park í Bretlandi þar sem þeir spiluðu fyrir yfir 40,000 manns. Salsa Celtica var stofnuð árið 1995 og vakti þegar athygli á pöbbum Edinborgar og Glasgow. Það var þó ekki fyrr en árið 2003 sem sveitin fór að vekja ahygli fyrir alvöru með breiðskífunni 'El Agua De La Vida' sem hlaut fyrirtaks dóma og komst hátt á Heimstónlistarlista Evrópu (World Music Chart Europe). Tímaritið Songlines lýsir tónlist Salsa Celtica sem ástríðufullri og karftmikilli á meðan Evening Standard þykir mikið koma til kúbanskra áhrifa í tónlist sveitarinnar; "Salsa Celtica have real emotional range… El Camino's passion, energy and virtuosity suggest that Salsa Celtica's form of fusion has far to go. A road well worth following" (Songlines), "The tight Cuban piano and percussion kick off an exuberantly good-time salsa track that seamlessly weaves in a Scottish reel on fiddle and pipes.their fourth album and they're swinging" (The Evening Standard).Vefur: www.salsaceltica.com KK og Blue TruckKK verður á blús nótunum á Vorblótinu með hljómsveit sinni Blue Truck, en þetta er í fyrsta sinn sem KK og hljómsveit hans kemur fram undir þessu nafni.
Lífið Menning Mest lesið Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Hundrað skvísur blómstruðu saman Lífið Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Lífið samstarf Fleiri fréttir Vangaveltur blóðmerabónda Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins er í kvöld Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó Céline Dion snýr aftur á stóra sviðið: „Ég elska ykkur öll og sé ykkur bráðlega“ Hildur Guðnadóttir hátíðarlistamaður 2026 Í bataferli frá fíkninni Ótrúleg saga Rose Dugdale „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuviðvörun „Það sést ekki á mér að ég sé að upplifa þetta“ Þórbergur og Laxness í ruslinu „Talan á vigtinni hefur sagt mér alltof mikið í gegnum tíðina“ „Að vera ættleidd er ein stærsta gjöf sem ég og fjölskyldan mín höfum fengið“ Krakkatía vikunnar: Nói, bófi og starfsmaðurinn Snjói Áhrifavaldurinn Clavicular handtekinn Back to the Future-leikari látinn Fréttatía vikunnar: Raðvændiskaupandi og baráttan við verðbólgudrauginn Birnir á plötu ársins Laufey Lín söngkona ársins Sjá meira